Kom að þáverandi eiginmanninum í rúnkhring
Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian rifjaði upp þegar hún kom að þáverandi eiginmanni sínum, körfuboltakappanum Lamar Odom, í „rúnkhring“ (e. circle jerk) á hótelherbergi.
Hún og móðir hennar, Kris Jenner, sögðu frá atvikinu í nýjasta þætti af The Kardashians.
„Khloé frétti að Lamar væri að reykja krakk á ákveðnu hóteli [með vændiskonum],“ sagði Kris og bætti við að þær hafi klætt sig í svört föt til að láta lítið fyrir sér fara.
Þeim tókst að brjótast inn í herbergið og við þeim blasti erfið sjón.
„Þau voru í rúnkhring. Það voru 20 manns í herberginu, allir naktir. Ég stökk af stað og byrjaði bara að slá og kýla,“ sagði Khloé.
Á meðan hún réðst á vændiskonurnar sem voru þarna með Lamar gekk Kris um með ruslatunnu og henti öllum fíkniefnunum.
Horfðu á þær segja frá sögunni hér að neðan.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗