Ferdinand líkir yfirlýsingu United við ChatGPT – „Ég vil sjá andlit!“
Rio Ferdinand, fyrrverandi varnarmaður Manchester United, er ósáttur við hvernig félagið tilkynnti brottrekstur Michael Carrick í morgun.
United staðfesti tíðindin með 142 orða yfirlýsingu frá samskiptadeild félagsins, án þess að nokkur úr yfirstjórninni kæmi fram.
Ferdinand, sem lék með Carrick hjá United, gagnrýndi þetta harðlega á samfélagsmiðlum.
„Yfirlýsing Manchester United er eins og eitthvað frá ChatGPT. Ég vil heyra rödd! Ég vil sjá andlit á bak við þessa ákvörðun!“ skrifaði Ferdinand.
Carrick mætti á æfingasvæði United í Carrington klukkan 7:50 í morgun en yfirgaf svæðið klukkan 10:18 eftir að hafa verið sagt upp störfum.
Ákvörðunin var tekin af forráðamönnum félagsins, þar á meðal Sir Jim Ratcliffe, Omar Berrada og Jason Wilcox.
Mauricio Pochettino er nú talinn líklegastur til að taka við United.
Samkvæmt fréttum hefur félagið náð munnlegu samkomulagi við Argentínumanninn og haft formlegt samband við bandaríska knattspyrnusambandið.
Ferdinand vill hins vegar að stjórnendur United axli ábyrgð á brottrekstrinum opinberlega.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗