Inga hirtir borgarstjórn: „Skammist ykkar!“

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur borgarstjórn heyra það og segir hana sína af sér hreina og klára mannvonsku í máli íbúa hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða.

„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar. Vorum búin fyrr í vor að fá mannsæmandi aðstöðu fyrir hjólhýsafólkið okkar. Það var hins vegar fyrsta verk nýrrar borgarstjórnar að rifta því, enda aðal áhugamál Einars Þorsteinssonar að ráðast gegn þessu fólki,“ segir Inga í færslu sinni.

Silja Sóley Birgisdóttir, áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins, lagði til á fundi borgarráðs í gær, fimmtudaginn 12. nóvember, að opnað yrði aftur fyrir vatn og rafmagn í hjólhýsabyggðinni frá 16. nóvember til 1. apríl. Menningar- og íþróttaráð fengi það hlutverk að útfæra hvernig kostnaðurinn yrði greiddur í samráði við íbúana. 

Borgarráð vísaði tillögunni frá og vísaði meirihlutinn til þess að slökkviliðið krefjist umfangsmikilla úrbóta á brunavörnum á svæðinu. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sátu hjá við afgreiðsluna.

„Nú búa þau við lífshættulegar aðstæður, rafmagns og vatnslaus. Við erum ekki í stríði þar sem frostavetur getur drepið fólk en með þessari framgöngu gegn okkar minnstu bræðrum og systrum er engu líkara en svo sé. Skammist ykkar!“ segir Inga.

Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar kom fram að íbúum hjólhýsabyggðarinnar hafi verið gert að rýma svæðið fyrir 1. nóvember. Meirihlutinn sagði óforsvaranlegt að verja fé í úrbætur sem slökkviliðið krefst þar sem uppbygging sé fyrirhuguð á svæðinu. 

Sjá má afgreiðslu málsins á fundi borgarráðs undir lið 15 hér.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅