Ósætti og orðaskipti á lokavikum Carricks
Síðustu vikur Michaels Carricks sem knattspyrnustjóra Manchester United einkenndust meðal annars af ágreiningi við fyrirliðann Bruno Fernandes og spennuþrungnum orðaskiptum við Matheus Cunha.
Fernandes virtist draga leikaðferð Carricks í efa eftir 4:1-tapið gegn Como í Meistaradeildinni. Aðspurður hvort leikáætlunin hefði verið röng sagði hann:
„Það er stjórans og þjálfarateymisins að meta það, ekki mitt.“
Carrick setti Fernandes á bekkinn gegn Bournemouth og bar fyrir sig knattspyrnulegar ástæður. Þeir ræddu síðan saman og Fernandes sneri aftur í liðið gegn Chelsea.
Carrick sendi einnig Cunha inn í göngin eftir 3:2-sigurinn á Roma. Hann var þó að sögn að reyna að koma í veg fyrir frekari refsingu fyrir framherjann, sem hafði fengið rautt spjald en kom aftur út á völlinn til að fagna.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗