Fjórtán ár frá síðustu undirritun
Bryndís Ósk Jökla Björnsdóttir framkvæmdastjóri og Kjartan Páll Sveinsson formaður Landssambands smábátaeigenda á aðalfundi sambandsins í október. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Já, það eru góðar líkur á undirritun, en það er náttúrlega þannig með kjaradeilur að það er ekkert víst fyrr en stafir eru komnir á blað,“ segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda (LS).
Stefnt er að undirritun nýs kjarasamnings Sjómannasambands Íslands, VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Félags skipstjórnarmanna við LS fyrir hádegi í dag.
Farmanna- og fiskimannasambandið var viðsemjandi í fyrri samningi en var lagt niður 2017 og Félag skipstjórnarmanna tók við skyldum þess.
Fjórtán ár eru frá undirritun síðasta samnings en hann rann svo út í janúarlok 2014. Hann heldur þó gildi sínu þar til nýr samningur er gerður.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗