Flestir komnir með nóg af De Bruyne sem gæti farið í janúar

Kevin De Bruyne, fyrrverandi miðjumaður Manchester City, gæti verið á leið frá Napoli eftir aðeins átján mánuði hjá ítalska félaginu.

Samkvæmt ítalska miðlinum Il Mattino hefur Belginn lent upp á kant við nokkra samherja sína og framtíð hans hjá félaginu er nú í óvissu.

Rasmus Højlund, fyrrverandi framherji Manchester United, er sagður vera meðal þeirra sem hafa átt í deilum við De Bruyne.

Þá eru Giovanni Di Lorenzo, fyrirliði Napoli, og Lorenzo Lucca einnig nefndir til sögunnar.

De Bruyne og Lucca lentu meðal annars í orðaskiptum á vellinum í 4-1 tapi gegn Porto í síðustu viku.

De Bruyne, sem er 35 ára, gekk til liðs við Napoli sumarið 2025 eftir tíu ár hjá Manchester City.

Hann hefur leikið 36 leiki fyrir Napoli, skorað níu mörk og lagt upp sex.

Samningur hans rennur út næsta sumar, en Napoli hefur möguleika á eins árs framlengingu.

Ekki er útilokað að hann fari strax í janúar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅