Víðtæk bilun hjá Microsoft veldur glundroða um allan heim

Alvarleg bilun í tölvukerfum Microsoft hefur valdið víðtækri röskun á starfsemi fyrirtækja og opinberra stofnana víða um heim. Heilbrigðisstofnanir og lögregluembætti í Bretlandi hafa meðal annars þurft að grípa til ráðstafana.

BBC greinir ítarlega frá biluninni í beinni fréttavakt sinni, en vandamálin hófust í gær og hafa nú staðið yfir í meira en hálfan sólarhring.

Bilunin hefur meðal annars haft áhrif á tölvupóstþjónustuna Outlook, samskiptaforritið Teams og gervigreindarþjónustuna Copilot. Áhrifanna hefur orðið vart í að minnsta kosti 74 löndum, þar á meðal Íslandi.

Samkvæmt vefnum Downdetector, sem tekur við tilkynningum um bilanir í netþjónustum, bárust nærri 140 þúsund tilkynningar um vandamál með Outlook þegar mest lét í gærkvöldi. Um klukkan sjö í morgun höfðu að minnsta kosti 43 þúsund tilkynningar borist á einni klukkustund frá 72 löndum.

Óttast tafir í heilbrigðisþjónustu

Í frétt BBC kemur fram að áhrif bilunarinnar séu meðal annars farin að segja til sín í breska heilbrigðiskerfinu.

Tim Frank, heimilislæknir í Cornwall á Englandi, sagði í samtali við BBC í morgun að Microsoft-kerfin væru lykilþáttur í starfsemi heilsugæslunnar. Hann hefði hvorki getað tekið á móti tölvupósti í nótt né í morgun.

Hann sagði ljóst að dagurinn yrði afar erfiður, ekki síst þar sem föstudagar væru jafnan annasamir vegna komandi helgar.

Bresku lyfjafræðingasamtökin hafa einnig varað við því að bilunin geti valdið töfum á afgreiðslu lyfseðla. Samskipti apóteka við læknastofur hafa raskast og sjúklingar gætu þurft að bíða lengur en venjulega eftir lyfjunum sínum.

Lögreglan biður fólk um að hringja

Nokkur lögregluembætti í Bretlandi hafa jafnframt tilkynnt um truflanir á rafrænni þjónustu.

Lundúnalögreglan hefur varað við því að truflanir kunni að verða á móttöku tilkynninga sem sendar eru í gegnum vef lögreglunnar. Fólk er því hvatt til að hafa samband símleiðis vegna áríðandi erinda.

Sambærilegar tilkynningar hafa borist frá lögregluembættum í Manchester, Norður-Jórvíkurskíri og Wales.

Bresk stjórnvöld segjast vinna náið með Microsoft að því að meta áhrif bilunarinnar á opinbera þjónustu. Luke Pollard, varnarmálaráðherra Bretlands, segir atvikið undirstrika hversu háð samfélagið sé tæknikerfum og hversu mikilvægt sé að þau þoli áföll.

Unnið að lausn

Microsoft hefur skýrt frá því að hluti netþjóna fyrirtækisins hafi óvænt orðið óvirkur. Við það hafi álag á aðra netþjóna aukist verulega og valdið keðjuverkandi truflunum.

Fyrirtækið segist ekki hafa fundið vísbendingar um að bilunin stafi af tölvuárás.

Viðgerðir hafa staðið yfir frá því í gær og í nýjustu upplýsingum fyrirtækisins kemur fram að aðgerðir til að auka stöðugleika kerfanna séu farnar að skila jákvæðum árangri. Enn er þó unnið að því að koma þjónustunni að fullu í lag.

Bilunin hefur einnig haft áhrif á þjónustur annarra tæknifyrirtækja, þar á meðal OpenAI og Anthropic, sem nýta innviði Microsoft.

Sérfræðingar í netöryggismálum segja atvikið sýna hversu berskjölduð fyrirtæki og stofnanir geti verið þegar starfsemi þeirra byggist að stórum hluta á þjónustu eins tæknirisa.

Þrátt fyrir umfang bilunarinnar hafa stærstu flugvellir Bretlands, þar á meðal Heathrow, Manchester og Stansted, greint frá því að flugrekstur gangi að mestu eðlilega fyrir sig.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅