„Ég vil ekki trúa því“

Dr. Haraldi Bernharðssyni prófessor líst ekki á blikuna og í sama streng tekur Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans sem mbl.is ræddi við í gær. Ljósmynd/Aðsend

„Áhyggjuefnið er að þessi áform um að leggja skólagjöld á einstaklinga með ríkisfang utan EES og tímabundið dvalarleyfi hér á landi vegna ráðningarsambands munu í reynd loka algjörlega fyrir aðgang þessara einstaklinga að kennslu í íslensku sem öðru máli í Háskóla Íslands.“

Þetta segir Haraldur Bernharðsson, forseti hugvísindasviðs skólans og prófessor í íslenskum miðaldafræðum, um þær fyrirætlanir íslenskra stjórnvalda að leggja skólagjöld á þennan hóp nemenda við íslenska háskóla, það er þá sem koma frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Og prófessorinn er ekki einn um skoðun sína:

Þessa nýju stefnu í menntamálum boðaði Logi Már Einarsson, ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólamála, í viðtali hér á mbl.is í september í fyrra og kvaðst þá mundu leggja fram frumvarp á þinginu, og gerði það, með þessa breytingu fyrir augum sem Háskóli Íslands hefur séð ástæðu til að halda málþing um sem hefst nú klukkan 10.00 og ber yfirskriftina „Skiptir íslenska máli? – Málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli“.

Málþingið fer fram í fyrirlestrasal Eddu – húss íslenskunnar.

Fimm milljónir fyrir 120 eininga framhaldsnám

Haraldur ræddi málið frá annarri og sértækari hlið í Morgunblaðinu í gær, þar ræddi hann um meistaranámið í miðaldafræðum sem hefur laðað að sér færa nemendur með sterkan fræðilegan bakgrunn hvaðanæva auk þess að verða viss landkynning þegar nemendur þaðan færu áfram í annað nám við háskóla erlendis

„Það er dýrt að búa á Íslandi. Framfærslukostnaður er hár og nemendur okkar hafa fundið fyrir því. Það er hlutur sem við ráðum ekki við en ef þessi skólagjöld bætast við þá er þetta bara búið spil,“ sagði Haraldur við Morgunblaðið í gær.

Þetta eru stór orð. En eru þau svo fjarri sanni? Námið mun með fullum skólagjöldum kosta tæplega fimm milljónir króna á hvern nemanda. Fimm milljónir fyrir 120 eininga framhaldsnám í grein sem er ekki augljós peninganámsgrein heldur fræði um bókmennta- og menningararf norrænna þjóða sem nemendur kynna svo ef til vill og ræða í doktorsnámi einhvers staðar allt annars staðar í heiminum – þar á meðal utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli hefst í Eddu nú klukkan 10. mbl.is/Árni Sæberg

Brennur land- og sögukynningin, sem Íslendingar hafa fram til þessa haft í hávegum, upp í svimandi skólagjöldum þegar efnilegir nemendur og fræðafólk utan úr heimi hafa ekki lengur efni á að koma hingað til að lesa fræðin í háskóla sem vill bera sig saman við þá bestu í heimi?

„Mér virðist þetta vera afar óskynsamleg ráðstöfun,“ heldur Haraldur áfram og ræðir nú um heilbrigðiskerfið, umræðuefnið á málþingi dagsins.

„Þessir einstaklingar sem þarna um ræðir eru búsettir hér á landi. Þeir eru virkir á íslenskum vinnumarkaði, gegna þar mjög mikilvægum, og má segja kannski viðkvæmum, störfum í heilbrigðisþjónustu á Landspítala og á hjúkrunarheimilum. Þeir greiða skatta og skyldur til íslensks samfélags,“ segir hann.

Íslenska er nauðsynleg

Starfa sinna vegna þurfi þessir einstaklingar að læra íslensku. Vinnuveitandi krefjist þess, samfélagið krefjist þess. „Þetta eru einstaklingar sem starfa mikið, starf þeirra kallar á mikil mannleg samskipti við sjúklinga, við aðstandendur, samstarfsfólk, aldraða, aðstandendur aldraðra og sjúklinga. Þannig að íslenska er nauðsynleg. Landspítali krefst nú mjög víða á sínum starfsstöðvum færni í íslensku upp á B2 í Evrópurammanum,“ heldur Haraldur máli sínu áfram.

Hann er á því að gera verði innflytjendum til landsins mögulegt að mæta þessari kröfu um íslenskufærni. Vissulega kosti það peninga að halda úti námi í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands.

„En þeim fjármunum er vel varið,“ segir Haraldur ákveðinn. „Þetta er fjárfesting í mannauði okkar samfélags. Við viljum, og þetta hefur verið algjörlega skýrt í opinberri málstefnu íslenskra stjórnvalda mjög lengi, tryggja greitt aðgengi að kennslu í íslensku sem öðru máli,“ segir hann.

Sá egghvassi vilji beinist að því að fækka hindrunum, lækka þröskulda, gera fólki mögulegt að læra íslensku og til þess þurfi tækifæri og hvatningu.

Missa tækifæri til lýðræðisþátttöku

„Þessi ráðstöfun, að reisa þarna himinháan gjaldvegg, gengur algjörlega þvert á þessa hugsun sem hefur verið ríkjandi í íslenskri málstefnu í áratugi. Hættan er einmitt það sem við viljum ekki að gerist, við viljum ekki að hér í þessu samfélagi verði til jaðarhópur sem fær ekki tækifæri til menntunar, atvinnu og þroska, hreinlega lýðræðisþátttöku, vegna þess að hann er ekki nógu góður í íslensku,“ segir forseti hugvísindasviðs.

Bendir hann enn fremur á að sá hópur, sem lagabreyting ráðherra kemur í koll, sé virkur hluti af samfélaginu og greiði skatta í ríkissjóð.

Haraldur sveigir talið út fyrir heilbrigðiskerfið, þar sem mannslíf eru þó undir, og nefnir leiðbeinendur á leikskólum og frístundaheimilum sem vinni með börnum.

„Þetta fólk þarf að kunna íslensku. Við þurfum að gefa þessum einstaklingum tækifæri til þess að læra íslensku. Þetta er kjarni málsins og ég lít svo á að þetta sé yfirsjón hjá stjórnvöldum. Ég vil ekki trúa því að þetta sé beinlínis stefna hjá íslenskum stjórnvöldum, að fækka þeim sem læra íslensku. Ég held að þetta hljóti að vera vangá,“ segir hann.

Þá vangá þurfi að færa til rétts vegar. „Einstaklingar, sem eru með ákveðna flokka af tímabundnu dvalarleyfi og eru í virku ráðningarsambandi, eru undanþegnir þessum skólagjöldum og geta fengið að læra íslensku eins og við viljum að þeir geri. Við viljum að þeir læri íslensku og þessir einstaklingar þurfa að læra íslensku,“ segir Haraldur Bernharðsson að skilnaði, forseti hugvísindasviðs Háskóla Íslands og prófessor þar í íslenskum miðaldafræðum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅