Einn á slysadeild eftir árekstur við gatnamót
Innlent | mbl | 13.11.2026 | 8:59
Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar um hálfníuleytið í morgun.
Annar bíllinn var fólksbíll en hinn lítill sendibíll.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er sá sem var fluttur á slysadeild ekki talinn alvarlega slasaður en dælubíll og sjúkrabíll voru sendir á vettvang.
Búið er að fjarlægja annan bílinn sem lenti í árekstrinum en dráttarbíll mun sækja hinn.
Miklar umferðartafir hafa orðið egna slyssins.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
