Sneri heim þrátt fyrir óhugnanlegar hótanir

Ángel Di Maria.

Ángel Di Maria. AFP/Charly Triballeau

Argentínskur dómstóll hefur dæmt Sergio Di Vanni, 45 ára stuðningsmann Newell’s Old Boys, í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir brot sem meðal annars fólu í sér að hafa fyrirskipað hótanir gegn fjölskyldu Ángels Di María, samkvæmt AFP.

Ógnanirnar fólu meðal annars í sér skothríð nálægt fasteign Di María og svínshaus með skotsári sem skilinn var eftir fyrir utan fyrirtæki systur hans, auk hótunar gegn dóttur hans.

Markmiðið með herferðinni var að koma í veg fyrir að Di María gengi til liðs við nágrannaliðið og erkifjendurna Rosario Central árið 2024.

Hann hætti upphaflega við félagaskiptin vegna öryggis fjölskyldu sinnar en sneri aftur árið 2025.

Kona sem var vitorðsmaður þess dæmda hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs dóm. Dómurinn yfir Di Vanni náði einnig til annarra brota sem tengdust stuðningsmannahópnum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅