Afspyrnuhvasst í fyrramálið

Mikið hvassviðri verður á Austfjörðum og Suðausturlandi fram eftir degi á morgun, en rólegheitaveður um land allt á sunnudaginn. mbl.is/Golli/Kjartan Þorbjörnsson

„Í aðalatriðum er þetta svipað, gengur í norðanstórhríð á norðanverðu landinu í kvöld, færist svo yfir á austurhluta landsins í nótt, þar sem veðrið verður verst, og lokahnykkurinn í fyrramálið,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is um það veður sem nú gengur yfir landið.

Raunar var Birgir einmitt að hefjast handa við að færa spá fyrir Austurland yfir á appelsínugula viðvörun þegar blaðamaður hringdi, en viðvaranir, þegar þetta er skrifað, eru eftirfarandi á síðu Veðurstofunnar:

Gul viðvörun: Vestfirðir, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, miðhálendi, Faxaflói, Breiðafjörður.

Appelsínugul viðvörun: Suðausturland, Strandir og norðurland vestra, Norðurland eystra, Austfirðir.

Í fyrramálið dregur úr ofankomu að sögn Birgis, en verður áfram afspyrnuhvasst á Austfjörðum og Suðausturlandi fram eftir degi. Öllu rólegra verður á vestanverðu landinu, 8 til 13 metrar á sekúndu og smáél og sunnudagur meinlaus um allt land.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅