Dómur um olíuleyfi gæti orðið fordæmisgefandi
Vinnslupallurinn Statfjord A á norska Statfjord-olíuvinnslusvæðinu í Norðursjó, hluti svæðisins tilheyrir þó Bretum. Ljósmynd/Wikipedia.org/Jarvin Jarle Vines
Hæstiréttur Noregs kveður í dag upp langþráðan dóm um olíuleyfi sem stjórnvöld veittu en loftslagsbaráttufólk hefur véfengt, í máli sem gæti orðið fordæmisgefandi fyrir olíuframleiðslu landsins.
Fylgst verður grannt með dómnum utan landamæra Noregs, af þeim fjölmörgu lögfræðingum og frjálsu félagasamtökum sem hafa véfengt framleiðsluleyfi olíufélaga á loftslagsforsendum.
Veitt án fullnægjandi umhverfismats
Loftslagsbaráttufólk, sem véfengdi norsku leyfin með þeim rökum að þau hefðu verið veitt án fullnægjandi mats á umhverfisáhrifum, hefur unnið sigur í tveimur dómum á lægri dómstigum.
Dómararnir heimiluðu þó að starfsemi héldi áfram á svæðunum þremur í Norðursjó sem deilt er um á meðan orkumálaráðuneytið áfrýjaði dómunum.
Þriðji sigur baráttufólksins „myndi þýða að Hæstiréttur teldi olíusvæðin þrjú ólögleg og ógild,“ sagði Klimentina Radkova, sem fer með málið fyrir hönd Greenpeace, í samtali við AFP.
Unnu málið árið 2024
Ungmennasamtökin Young Friends of the Earth Norway og norska deild Greenpeace höfðuðu málið árið 2023 gegn leyfunum fyrir svæðin Tyrving, Breidablikk og Yggdrasil og sögðu þau hafa verið samþykkt áður en mat á umhverfisáhrifum hefði farið fram.
Í janúar 2024 dæmdi héraðsdómur þeim í vil, sem varð til þess að norska orkumálaráðuneytið áfrýjaði, og var dómurinn síðan staðfestur af áfrýjunardómstól í nóvember 2025.
Orkumálaráðuneytið hélt því fram að engar forsendur væru fyrir því að stöðva verkefnin.
Breidablikk og Tyrving eru nú í rekstri, en áætlað er að framleiðsla hefjist á Yggdrasil, þar sem mat á mögulegum forða var nýlega hækkað, árið 2027.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗