Táraðist við undirskriftina

Lionel Scaloni.

Lionel Scaloni. AFP/Alejandro Pagni

Landsliðsþjálfarinn Lionel Scaloni hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við argentínska knattspyrnusambandið.

Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi Scalonis en Argentína mætir Úrúgvæ í kvöld síðan og Kosta Ríka í tveimur landsleikjum í yfirstandandi glugga. 

Hann hefur stýrt argentínska karlalandsliðinu frá árinu 2018 eftir að heimsmeistaramótinu í Rússlandi lauk og gerði Argentínu að heimsmeisturum árið 2022 í Katar.

Þá hefur Argentína tvisvar orðið Suður-Ameríkumeistari undir hans stjórn, 2021 og 2024. 

Þá komst liðið alla leið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í Norður-Ameríku í sumar en mátti þola tap fyrir heimsmeisturum Spánar.

Nýr samningur Scalonis gildir út heimsmeistaramótið 2030 sem fram fer í Marokkó, Portúgal og á Spáni, en hann verður án Lionels Messis, fyrirliða liðsins síðastliðinn áratug, en Messi lagði landsliðsskóna á hilluna á dögunum.

Scaloni er algjör hetja í Argentínu eftir að hafa leitt landsliðið til þriggja stórtitla, þar á meðal heimsmeistaratitilsins, eftir margra ára bið eftir stórum titli.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅