Sonur Beckham hjónanna ver eiginkonu sína eftir að hún birti þessa mynd – „Þetta er til skammar“

Sonur Beckham ver eiginkonu sína – „Þetta er til skammar“

Brooklyn Beckham, sonur knattspyrnugoðsagnarinnar David Beckham, hefur komið eiginkonu sinni, Nicolu Peltz Beckham, til varnar eftir harða gagnrýni á útlit hennar.

Nicola, sem er 31 árs, birti nýlega myndir af sér á Instagram þar sem hún klæddist fjólubláum fatnaði og hélt á rauðri Chanel-tösku.

Myndirnar vöktu mikil viðbrögð og sumir fylgjendur gagnrýndu holdafar hennar.

„Það kemur að þeim tímapunkti að það er ekki lengur heilbrigt að vera svona grannur,“ skrifaði einn.

Aðrir komu Nicolu til varnar og gagnrýndu fólk fyrir að tjá sig um líkama annarra.

Brooklyn hafði áður svarað sambærilegum ummælum undir matreiðslumyndbandi sínu.

Brooklyn Beckham og Nicola Peltz. Mynd/Getty

„Ekki voga þér að tala svona um eiginkonu mína. Hún er gullfalleg og þú átt aldrei að tjá þig um líkama konu. Þetta er til skammar,“ skrifaði hann.

Brooklyn og Nicola gengu í hjónaband árið 2022 en samband þeirra hefur verið mikið til umfjöllunar vegna fjölskyldudeilna hjá Beckham-fjölskyldunni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅