Fjallvegir á óvissustigi eftir hádegi
Innlent | mbl | 13.11.2026 | 8:07
Vegirnir um Öxnadalsheiði, Holtavörðuheiði og Brattabrekku verða á óvissustigi eftir hádegi í dag og gætu því lokast með stuttum fyrirvara.
Á Vestfjörðum verður vegurinn um Steingrímsfjarðarheiði einnig á óvissustigi frá klukkan 14 í dag, ásamt fleiri fjallvegum í landshlutanum, að því er segir á vef Vegagerðarinnar.
Flughálka er víða í Húnavatnssýslu og víða í Skagafirði. Snjóþekja er á Tröllaskaga, í Hrútafirði og víðar.
Hálka er á flestum leiðum á Suður- og Austurlandi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗