Missti handlegg í hákarlaárás og sýnir ör sín

Leah Stewart missti handlegg og slasaðist alvarlega á fæti í hákarlaárás í júní. Hún segist ætla að bera ör sín með stolti. Samsett mynd

Leah Stewart, áströlsk kona sem missti handlegg og slasaðist alvarlega á fæti í hákarlaárás fyrr á árinu, segir sárið á fæti sínum loks gróið eftir margra mánaða meðferð.

Stewart var í morgunsundi við Coogee-strönd í Ástralíu hinn 13. júní þegar hákarl réðst á hana. Hún var þá 34 ára og reyndi að berja hákarlinn frá sér. Hann reif af henni handlegginn og beit hana í fótinn með þeim afleiðingum að hún missti mikið blóð. Hún lá í dái í tíu daga eftir árásina.

Í myndskeiði sem hún birti á Instagram greinir Stewart frá batanum og sýnir ör sitt. Læknar notuðu sérstakan búnað til að draga saman sárið á fæti hennar, en þrátt fyrir tvær húðígræðslur tók um fjóra og hálfan mánuð að græða það að fullu.

„Ég er svo glöð. Þetta eru bestu fréttir sem ég gat fengið,“ segir hún.

Þakklát fyrir að geta gengið

Þótt sárið sé gróið er löng endurhæfing fram undan.

„Þótt fóturinn verði aldrei jafngóður og ég þurfi margra ára sjúkraþjálfun er ég svo þakklát fyrir að hafa hann enn og geta gengið,“ skrifar Stewart við færsluna. Hún þakkar læknum, hjúkrunarfræðingum og sjúkraþjálfurum fyrir að hafa hjálpað sér og segist ætla að bera ör sín með stolti.

Stewart er kennari og á unga dóttur, August. Í viðtali við ástralska fréttaskýringaþáttinn 60 Minutes lýsti hún því hvernig hugsunin um dótturina hefði knúið hana áfram í baráttunni fyrir lífi sínu.

„Hákarlinn hélt fast um fótinn á mér og þá hugsaði ég um August. Ég hugsaði: Hún verður móðurlaus. Hún á eftir að alast upp án mömmu sinnar. Ég gat ekki hugsað mér það.“

People

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅