Fjallvegir á óvissustigi eftir hádegi

Innlent | mbl | 13.11.2026 | 8:07

Brattabrekka núna í morgun í vefmyndavél Vegagerðarinnar.

Brattabrekka núna í morgun í vefmyndavél Vegagerðarinnar. Ljósmynd/Vegagerðin

Vegirnir um Öxnadalsheiði, Holtavörðuheiði og Brattabrekku verða á óvissustigi eftir hádegi í dag og gætu því lokast með stuttum fyrirvara.

Á Vestfjörðum verður vegurinn um Steingrímsfjarðarheiði einnig á óvissustigi frá klukkan 14 í dag, ásamt fleiri fjallvegum í landshlutanum, að því er segir á vef Vegagerðarinnar.

Flughálka er víða í Húnavatnssýslu og víða í Skagafirði. Snjóþekja er á Tröllaskaga, í Hrútafirði og víðar.

Hálka er á flestum leiðum á Suður- og Austurlandi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅