Dreymir um að feta í fótspor föður og stóra bróður
Daníel Tristan Guðjohnsen, sóknarmaður Malmö í Svíþjóð og íslenska U21 árs landsliðsins í fótbolta, dreymir um að spila á Englandi.
Faðir hans, Eiður Smári Guðjohnsen, gerði afar góða hluti með Chelsea á sínum tíma og eldri bróðir hans, Andri Lucas Guðjohnsen, raðar inn mörkum með Blackburn í B-deildinni um þessar mundir.
„Já, að spila þar einhvern tímann væri alveg sturlað. Það hefur alltaf heillað mig og ég held að það sé draumur allra að spila á Englandi einhvern tímann á ferlinum,“ sagði Daníel við mbl.is.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗