Juventus vill mann frá City á láni í janúar

Juventus hefur áhuga á að fá Rayan Aït-Nouri, vinstri bakvörð Manchester City, á láni þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Þetta kemur fram í frétt ítalska íþróttablaðsins Gazzetta dello Sport.

Aït-Nouri er 25 ára gamall landsliðsmaður Alsírs og er nú á óskalista ítalska stórliðsins.

Juventus vill styrkja vinstri væng varnarinnar fyrir síðari hluta tímabilsins og telur Alsírbúann áhugaverðan kost.

Félagið er sagt vilja skoða möguleikann á lánssamningi fremur en að kaupa leikmanninn strax.

Ekki liggur fyrir hvort Manchester City sé tilbúið að samþykkja slíka lausn eða hvort formlegar viðræður hafi hafist.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅