Aflýsir sýningum eftir að hafa verið gabbaður
Rasmus Wallbridge hefur ákveðið að aflýsa og fresta þeim sýningum sem áttu að fara fram það sem eftir er af þessu ári.
Þetta skrifar danski grínistinn í færslu á Instagram.
„Mér þykir það virkilega leitt, en ég hlakka til að snúa sterkur aftur á nýju ári, þegar sýningin verður frumsýnd,“ skrifar hann, að því er danska ríkisútvarpið greindi frá.
Hann útskýrir að hann hafi lengi unnið að frumsýningardegi einleiksins „Små sensationer“ og þess vegna þurfi hann að vera „fullkomlega tilbúinn, og það er ég ekki eins og er“.
„Nú ætla ég að taka mér hlé, horfast í augu við fjölskylduna mína og sjá til þess að verða tilbúinn fyrir árið 2027.“
Allir sem hafa keypt miða á sýningarnar sem um ræðir munu fá skilaboð frá miðasöluaðila eða sýningarstað. Wallbridge skrifar að unnið sé að því að finna nýjar dagsetningar fyrir sýningarnar sem var aflýst.
Fjögurra mánaða gabb
Tilkynningin frá grínistanum kemur eftir að Wallbridge varð óviljugur aðalpersóna í þáttaröðinni „Alle Elsker Rasmus“, sem nú hefur verið tekin úr birtingu, en framleiðslufyrirtækið Drive Studios og TV 2 stóðu að henni.
Þar hélt grínistinn í fjóra mánuði að hann ætti, ásamt vini sínum og samstarfsmanni Martin Johannes Larsen, að gera sína fyrstu kvikmynd fyrir Nordisk Film. Þess í stað var um gabb að ræða þar sem hann var tekinn upp með falinni myndavél fyrir það sem átti að verða þáttaröð um Wallbridge.
Málinu hefur verið líkt við söguþráð bandarísku kvikmyndarinnar The Truman Show með Jim Carrey í aðalhlutverki.
Skömmu eftir að fyrsti þáttur raðarinnar var birtur á TV 2 Play var þátturinn gagnrýndur af ýmsum þjóðþekktum einstaklingum fyrir að vera andlegar pyntingar og einelti meðal fullorðinna.
Gagnrýnin jókst áður en TV 2 ákvað að draga þáttinn til baka og hefja rannsókn á málinu.
Eftir nokkurra daga þögn steig Rasmus Wallbridge fram 31. október með færslu á Instagram. Þar skrifaði hann að hann ætlaði að einbeita sér að væntanlegri sýningu sinni.
Um leið greindi hann frá því að eftir afhjúpunina hefði Nordisk Film boðið honum þróunarsamning um kvikmynd, sem hann ætlar „af augljósum ástæðum“ ekki að halda áfram með.
Þakkar fyrir stuðninginn
Á dögunum náði Rasmus Wallbridge að prufukeyra nýju sýninguna sína. Þar var honum tekið með lófataki og stuðningi í Hanstholm.
„Er enn mjög snortinn af þeim gríðarlega stuðningi og kærleika sem ég hef fengið. Kærar þakkir fyrir það,“ skrifar Wallbridge í nýjustu færslu sinni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/19/1691929.jpg)