Skutu niður 1.200 úkraínska dróna: Fjórir drepnir
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, á samsettri mynd. AFP/Mandel Ngan/Andrew Caballero-Reynolds
Rússar sögðust í morgun hafa skotið niður nærri 1.200 úkraínska dróna yfir nóttina, í einni stærstu drónahrinu sem Úkraínumenn hafa sent og varð að minnsta kosti fjórum að bana.
Árásin var gerð degi eftir samningaviðræður undir forystu Bandaríkjanna sem miða að því að binda enda á stríðið sem bráðum hefur staðið yfir í fimm ár.
„Á síðastliðinni nóttu … stöðvuðu og eyddu loftvarnakerfi 1.198 úkraínskum drónum yfir meira en 15 rússneskum héruðum,“ sagði rússneska varnarmálaráðuneytið í yfirlýsingu.
Fjórir sem störfuðu á iðnaðarsvæði, þar sem eru olíuhreinsunarstöð og efnaverksmiðja, létust í Volgograd-héraði í suðurhluta landsins, að sögn yfirvalda á staðnum.
Skutu drónum á Kænugarð í gær
Í gær skutu Rússar fjölda sprengidróna á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, á meðan Pútín tók á móti bandarísku samningamönnunum í Moskvu, og lést að minnsta kosti einn í árásunum.
Úkraína hefur hert drónaárásir sínar á rússneska orkugeirann undanfarna 18 mánuði í því skyni að skerða tekjur Rússa og grafa undan getu þeirra til að fjármagna stríðið sem þeir hófu í febrúar 2022.
Úkraínumenn segja Rússa beina loftárásum að orkukerfi Úkraínu, sem hafi skilið íbúa um allt land eftir án rafmagns á meðan hitastig hríðfellur í aðdraganda vetrar.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
