Aðgerðir vegna Outlook ekki skilað árangri
Microsoft greindi frá því í morgun að aðgerðir sem fyrirtækið hefði gripið til í því skyni að lagfæra alþjóðlega truflun á Outlook hefðu ekki skilað tilætluðum árangri og að unnið væri að því að finna aðrar lausnir.
„Við höfum fylgst með stöðu þeirra breytinga sem gerðar voru til að bæta þjónustuhæfni og staðfest að þær virka ekki sem skyldi. Við erum að greina aðrar verkleiðir sem hægt er að beita til að auka afkastagetu í ljósi viðvarandi ójafnvægis í umferðarstýringu,“ sagði Microsoft í færslu á X.
Truflunin kom upp í gærkvöldi og áttu tugir þúsunda notenda í erfiðleikum með að komast í tölvupóstinn sinn.
Microsoft sagði í fyrstu að tilkynningar um truflanir væru að berast frá Norður- og Suður-Ameríku. Síðar kom í ljós að vandinn hafði áhrif á tengingu við Microsoft 365-þjónustuna hjá notendum alls staðar í heiminum.
Vandamál með Teams og Copilot
Microsoft 365 er áskriftarþjónusta fyrirtækisins í skýinu sem inniheldur vinsæl forrit á borð við Outlook og Teams.
„Við höfum komist að því að aukið álag er á hluta innviða á mörgum svæðum, sem á líklega þátt í tengingarvillunum,“ skrifaði fyrirtækið á X.
„Við leitum af fullum krafti allra leiða til að draga úr áhrifunum,“ bætti það við.
Downdetector, sem fylgist með netbilunum, sýndi mikla fækkun tilkynninga notenda um truflanir í Washington og Hong Kong um klukkan 4.50 í nótt.
Þúsundir notenda tilkynntu einnig um vandamál með Teams og Copilot, samkvæmt Downdetector.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
