Katrín opnar sig um lífið eftir krabbameinsmeðferð

Katrín prinsessa af Wales segir líðan sína misjafna á bataveginum eftir krabbameinsmeðferð. AFP/Chris Jackson

Katrín prinsessa af Wales segir líðan sína enn misjafna eftir krabbameinsmeðferð og að það taki tíma að ná sér. Hún hefur sótt huggun í náttúruna, sem hjálpaði henni að halda í vonina á erfiðustu stundunum.

Í viðtali við tímaritið Country Life segir prinsessan að henni hafi verið bent á það á sjúkrahúsinu að batinn yrði ekki stöðugur og að hann tæki tíma. Hún líkir ferlinu við gang náttúrunnar.

„Tímabil hvíldar, íhugunar og endurnýjunar eru jafn mikilvæg og tímabil vaxtar,“ segir Katrín.

Katrín ásamt Vilhjálmi eiginmanni sínum. Hún segir veikindin hafa gefið þeim nýja sýn á það sem skiptir máli í lífinu. AFP/Carlos Jasso

Sækir huggun í náttúruna

Katrín segir fólk lengi hafa leitað huggunar í náttúrunni, hvort sem það sæki frið í sveitinni, einveru til fjalla eða bata við sjóinn. Hún telur mikilvægt að náttúran fái að gegna hlutverki í bataferli fólks.

Á erfiðustu stundunum hafi hún minnt sig á að „við erum ekki ein og að við tengjumst einhverju stærra en okkur sjálfum“.

Prinsessan sagði frá krabbameinsgreiningu sinni í mars 2024 og lauk lyfjameðferð í september sama ár. Þá lýsti hún veikindunum sem flóknu, ógnvekjandi og ófyrirsjáanlegu ferli sem hefði reynst fjölskyldunni afar erfitt.

Reynslan hefði þó einnig minnt hana og eiginmann hennar, Vilhjálm Bretaprins, á að vera þakklát fyrir það einfalda en mikilvæga í lífinu sem oft væri tekið sem sjálfsögðum hlut.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅