Norðanstórhríð fyrir norðan og austan
Appelsínugular og gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir mestallt landið vegna hvassviðris og stórhríðar.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra og á Norðurlandi eystra taka appelsínugular viðvaranir gildi klukkan 15 og 17 í dag. Á Austfjörðum og Suðausturlandi taka þar gildi aðfaranótt laugardags.
Gular viðvaranir taka gildi í dag og í kvöld á Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, miðhálendinu og Ströndum og Norðurlandi vestra.
Búast má við mikilli hálku víða um land, einnig á höfuðborgarsvæðinu. Gengur í norðvestanhvassviðri með snjókomu norðanlands í dag og gerir norðanstórhríð á Norðurlandi í kvöld en austanlands í nótt, að því er segir í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands
Veðurspáin er þannig að það gengur í norðvestan og vestan 10 til 18 metra á sekúndu í dag, en hægari suðvestanlands. Snjókoma verður fyrir norðan, talsverð á miðhluta Norðurlands, en víða verður bjart syðra. Kólnandi og frystir víða.
Norðlægari átt og 15-25 m/s verða í kvöld og snjókoma, hvassast á Norðausturlandi, en úrkomulítið suðaustantil. Hiti verður nálægt frostmarki.
Það gengur í norðan 18-25 m/s með snjókomu austanlands í nótt, en hægari vestantil. Dregur smám saman úr vindi og ofankomu á morgun, 13-20 síðdegis og él, en mun hægari vestantil og stöku él vestast. Frost verður á bilinu 1 til 6 stig.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗