„Ég ætla ekki að búa aftur í París“

Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins, átti leið um Svarfaðardal á dögunum og leit við hjá Mathiasi Julien Spoerry í Böggvisbrauði. Þar tók hann myndirnar sem fylgja viðtalinu. mbl.is/Árni Sæberg

Franski bakarinn Mathias Julien Spoerry kom til Íslands sem tónlistarkennari en rekur nú súrdeigsbakarí þar sem áður var minkabú í Svarfaðardal. Hann malar kornið sjálfur, gefur deiginu góðan tíma og dreymir um að baka úr korni frá næsta bæ.

Mathias er að undirbúa opnun bakarísins þegar síminn hringir. Hann þarf að koma brauðunum fyrir og gera allt klárt áður en fyrstu viðskiptavinirnir mæta. Lausnin verður að sinna hvoru tveggja í einu.

„Þá get ég brasað á meðan,“ segir hann og heldur áfram undirbúningnum á meðan við spjöllum.

Á Böggvisstöðum í Svarfaðardal rekur Mathias Böggvisbrauð, lítið súrdeigsbakarí í húsinu þar sem hann býr. Þar malar hann kornið sjálfur í steinmyllu og gefur deiginu þann tíma sem það þarf. Hann er franskur bakari, menntaður söngvari og sérhæfður í miðaldatónlist. Leiðin að brauðofninum í dalnum var því ekki alveg bein.

Stóru súrdeigshleifana kallar Mathias frönsk sveitabrauð. Frá því að deigið er hnoðað þangað til brauðið fer í ofninn geta liðið fimmtán eða sextán klukkustundir. mbl.is/Árni Sæberg

Úr miðaldatónlist í súrdeig

Mathias er fæddur og uppalinn í Pau í suðvesturhluta Frakklands, nálægt Baskalandi. Tónlistin leiddi hann síðar til Parísar, þar sem hann bjó í fjögur ár við nám.

„Ég lærði söng að mestu leyti og sérhæfði mig í miðaldatónlist.“

Hann kom hins vegar til Íslands sem tónlistarmaður og tónlistarkennari. Þá höfðu þau hjónin búið í Sviss en eiginkona hans, Ella Vala Ármannsdóttir, er úr Svarfaðardal. Nú hefur hann búið hér í þrettán ár og íslenskan rennur lipurlega af vörunum, þótt hann staldri stundum við í leit að rétta orðinu þegar talið berst að kornrækt og mölun.

Mathias er fæddur og uppalinn í Pau í suðvesturhluta Frakklands, nálægt Baskalandi. mbl.is/Árni Sæberg

Þegar hann er spurður hvernig Frakka detti í hug að setjast að á Íslandi snýr hann spurningunni umsvifalaust við.

„Hvernig myndi maður vilja búa annars staðar? Mér finnst bara frábært að búa á Íslandi. Ég sakna þess alls ekki að búa í Frakklandi.“

Húsið á Böggvisstöðum á sér fjölbreytta sögu. Þar var áður minkabú og eftir að þeim rekstri lauk fékk húsnæðið ýmis önnur hlutverk. Mathias hefur meðal annars heyrt af bar, diskóteki og þrektímum undir sama þaki.

Mathias dreymir um að baka úr korni sem ræktað er í Svarfaðardal. Hann kannar nú möguleikana í samstarfi við nágranna sína í Syðra-Holti. mbl.is/Árni Sæberg

Mágkona hans keypti húsið áður en þau hjónin fluttu til landsins. Það var nægt pláss og þau ákváðu að koma sér þar fyrir líka.

„Þetta er svo stórt hús að það er pláss fyrir marga.“

Í dag rúmar það bæði heimili og bakaríið. Mathias hóf reksturinn árið 2019, samhliða tónlistarkennslu, en eftir þriggja ára hlé opnaði hann aftur í apríl síðastliðnum. Nú vill hann sjá hvernig það gengur að helga sig bakstrinum.

„Þegar bakaríið opnaði var ég enn þá tónlistarkennari og var að gera hvort tveggja. En mig langar að prófa bara baksturinn.“

Súrdeig er notað í allan bakstur hjá Böggvisbrauði, líka í sætabrauðið. mbl.is/Árni Sæberg

Lærði hjá bændum og bökurum

Áhugi Mathiasar á brauðbakstri varð til þess að hann nýtti fríin frá kennslunni til námsferða til Frakklands. Þar sótti hann þekkingu til fólks sem fylgdi hráefninu alla leið af akrinum og að brauðhleifnum.

„Ég fór að læra hjá fólki sem er bæði bændur og bakarar. Það ræktar sitt eigið korn, malar sjálft heima, býr til brauð úr því og selur beint til fólks.“

Þetta varð fyrirmyndin að hans eigin vinnubrögðum. Hann gekk ekki hinn hefðbundna menntaveg í bakstrinum. Þess í stað bjó hann sig sjálfur undir franska bakaraprófið og stóðst það.

Hann lærði fagið bæði af bókum, samtölum og eigin tilraunum. Hann vildi skilja hráefnið og finna aðferð sem samræmdist hugmyndum hans um gott brauð og vandaða framleiðslu.

„Þetta er ekki bara að baka brauð til að baka brauð,“ segir hann.

Myllan er hluti af bakstrinum

Í Böggvisbrauði hefst vinnan áður en hveitið verður að deigi. Mathias flytur inn lífrænt korn beint frá frönskum bónda og malar það sjálfur.

„Ég kaupi ekki malað hveiti. Ég kaupi korn og á sjálfur steinmyllu. Þá get ég malað hveitið rétt fyrir baksturinn.“

Hann velur gömul hveitiyrki og leggur áherslu á að þekkja uppruna hráefnisins. Sambandið við bóndann er beint og milliliðalaust.

Myllan gefur honum jafnframt færi á að vinna með ólíka hluta kornsins. Sérstaklega er hann stoltur af heilkornabrauðinu sínu, þar sem hveitiklíðið fær sérstaka meðferð áður en því er blandað við hveitið.

„Ég læt klíðið súrna áður en ég blanda því saman við. Þetta er svona þriggja daga ferli.“

Það er því nokkur vinna að baki hleifnum sem viðskiptavinurinn tekur með sér heim.

Mathias malar hveitið rétt fyrir baksturinn.

Tíminn vinnur með brauðinu

Mathias notar súrdeig í allan bakstur, líka sætabrauðið. Stóru hleifana sína kallar hann frönsk sveitabrauð og þegar hann lýsir aðferðinni skýtur eitt orð sífellt upp kollinum: tími.

Frá því að hann hnoðar deigið og þangað til brauðið fer í ofninn geta liðið fimmtán eða sextán klukkustundir. Á þeim tíma lætur hann deigið hefast við stofuhita.

„Það sem skiptir máli er tíminn. Ef maður leyfir hlutunum að gerast sjálfur verður útkoman betri.“

Hann vill búa til brauð sem fólki þykir gott að borða og leggur jafnframt áherslu á hráefnisval og umhverfið. Framleiðslan er enn smá í sniðum en hann vonast til að geta aukið hana smám saman.

Gott að búa í dalnum

Lífið í Svarfaðardal hentar Matthíasi vel. Hann nefnir rólega tilveru og lífsgæðin þegar hann ber hana saman við fyrri heimkynni.

„Ég ætla ekki að búa aftur í París. Mér fannst það svolítið krefjandi.“

Hann tekur virkan þátt í tónlistarlífinu, syngur í karlakór og stjórnar kvennakór. Samt getur tekið tíma að finna sig til fulls í samfélagi þar sem margir hafa þekkst alla ævi.

„Stundum er pínu erfitt að aðlagast alveg samfélaginu,“ segir hann. Þótt hann taki þátt í ýmsu finni hann stundum að hann sé ekki innfæddur.

Væntumþykjan fyrir staðnum leynir sér þó ekki.

„Mér finnst rosalega fínt að búa hér. Þetta er fallegur staður og allt til staðar sem maður þarfnast.“

Mathias leggur mikla hugsun í allt sem hann gerir og gott ef sætabrauðið er ekki með aðeins nostalgískum tóni. mbl.is/Árni Sæberg

Draumurinn vex á næsta bæ

Næsta skref gæti orðið að stytta leið kornsins verulega. Mathias er farinn að kanna möguleika á kornrækt í dalnum í samstarfi við nágranna sína í Syðra-Holti, sem rækta lífrænt grænmeti.

„Í staðinn fyrir að kornið komi frá Frakklandi eða jafnvel Austurlandi gæti það komið frá næsta bæ.“

Þangað til heldur hann áfram að mala og baka. Opið er í bakaríinu á þriðjudögum frá klukkan 15 til 19 og á fimmtudögum selur hann brauð í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri. Þar hafa framleiðendur úr nágrenninu einnig boðið fram vörur sínar.

Þannig er hann kannski að skapa það sem hann saknar helst frá Frakklandi: markaðsstemninguna.

„Það er alltaf það fyrsta sem ég geri þegar ég fer til Frakklands. Ég fer beint á markað og kaupi ost, brauð, grænmeti og ýmislegt.“

Nú vonast hann til að slík samkoma framleiðenda og viðskiptavina vaxi og dafni á Akureyri.

„Smátt og smátt.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅