Andlát: Bert M. Hanson

Bert M. Hanson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri heildsölunnar Íslensk Ameríska, lést 31. október síðastliðinn, tæplega 97 ára að aldri.

Bert fæddist 11. nóvember 1929 í New York í Bandaríkjunum og ólst þar upp. Flutti hann síðar til Los Angeles og rak sína eigin fasteignasölu þar. Bróðir hans, Thomas Hanson, f. 1932, býr enn í Kaliforníu.

Árið 1961 kynntist Bert í Los Angeles tilvonandi eiginkonu sinni, Ragnheiði Jónasdóttur, f. 1940, d. 2019. Sama ár fluttust þau til Íslands og giftu sig hér. Dóttir þeirra er Ragnheiður Lára Hanson, f. 1962, og barnabörnin eru tvö, Ragnheiður Rakel, f. 1992, og Rebekka Berta Hanson, f. 2001.

Árið 1964 stofnaði Bert Íslensk Ameríska, nú ÍSAM, og rak hana til ársins 2014. Hafði hann þá eignast mörg önnur fyrirtæki, til að mynda Mylluna, Ora og Frón. Með rekstri sínum stuðlaði Bert að auknum samskiptum milli Íslands og Bandaríkjanna og fyrir það framlag til 50 ára fékk hann sérstök verðlaun í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi árið 2011. Um var að ræða Partnership-verðlaunin svonefndu sem Fullbright-stofnunin stóð fyrir.

Bert stundaði golfíþróttina af kappi og var meðal annars með umboð fyrir golfvörur Ping hér á landi. Var hann lengi virkur félagi í Nesklúbbnum á Seltjarnarnesi og náði því afreki að fara sex sinnum holu í höggi, bæði hér á landi og í Bandaríkjunum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅