Hluti flotans gæti landað í Færeyjum
„Kolefnisgjaldið skaðar samkeppnishæfni Íslands,“ segir Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims. Hann segir ljóst að þegar stjórnvöld skattleggi hér atvinnulífið gríðarlega hátt miðað við önnur lönd muni það valda því að útgerðarmynstur fari að breytast.
Í nýrri greiningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) er bent á að Ísland skeri sig úr, því helstu samkeppnisþjóðir íslensks sjávarútvegs hafi ýmist undanþegið fiskiskip sambærilegum gjöldum, frestað þeim eða bætt útgerðum þau upp.
Samtökin benda á að kolefnisgjald á jarðefnaeldsneyti, sem sett hafi verið á til að ýta undir orkuskipti, hafi tífaldast að nafnvirði frá því það var fyrst lagt á. Sjávarútvegurinn hafi hins vegar engin tök á orkuskiptum, því tæknin sé ekki til.
„Í Færeyjum er ekkert kolefnisgjald, þannig að fyrir fiskiskip sem veiða við austurströnd Íslands fer að verða hagkvæmt að landa bara í Færeyjum og fylla sig af olíu þar,“ áréttar Guðmundur.
Út um skrifstofugluggann segist Guðmundur sjá þýskan togara sem sé að taka hér olíu áður en hann haldi til veiða við Grænland. „Hann borgar engin kolefnisgjöld, ekki frekar en Landhelgisgæslan þegar hún tekur olíu í Færeyjum.“
Guðmundur segir íslenska útgerð hafa fyrir löngu verið farna að skera niður hjá sér olíunotkun áður en kolefnisgjöld komu til.
„Notkunin byggist á því að við erum að nýta auðlind þar sem er ekki hægt að nota rafmagnsskip. Þau eru ekki til,“ segir hann. „Ef við höldum áfram með þessa skattagleði á Íslandi mun það skaða hér verðmætasköpun.“
Þá segist Guðmundur vantrúaður á þá leið að eyrnamerkja gjaldið verkefnum á sviði orkuskipta. „Ég hef alltaf verið á móti millifærslusjóðum. Þeir hafa aldrei skilað neinu.“
Í greiningu SFS segir að af fyrirliggjandi gögnum um kolefnisgjaldið sé ekki að sjá að það hafi haft afgerandi áhrif á olíunotkun í sjávarútvegi. SFS telja mikilvægt að gjaldtakan verði endurmetin í ljósi þessa og að hún taki mið af því sem gildir hjá helstu samkeppnisþjóðum.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗