Leggur til sölu Landsbankans
Óvissa ríkir um fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, en ljóst er að þeir fjármunir sem renna áttu til verkefna sáttmálans með sölu byggingarréttar í Keldnalandinu munu ekki skila sér í bráð.
Þá eru borgarstjórinn í Reykjavík, bæjarstjórinn í Kópavogi og formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar sammála um að ekki eigi að innheimta veggjöld af þeim stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu sem þegar eru til staðar. Öðru máli gegni þó um nýframkvæmdir, t.d. Miklubrautargöng.
Kvartað er yfir því að skýr svör skorti frá ríkinu sem á að standa straum af tæplega 90% kostnaðar við verkefni sáttmálans.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, bendir í samtali við Morgunblaðið á fjármögnunarleið sem hún telur að geti leyst vandann.
„Sem dæmi vil ég nefna að það má selja Landsbankann, en eigið fé bankans er um 350 milljarðar króna. Við það eitt að selja Landsbankann og greiða niður skuldir myndi ríkið spara á að giska 25 milljarða á hverju einasta ári í vaxtakostnað, en um 10 milljarða á ári að teknu tilliti til arðgreiðslna. Það að fara þessa leið til að fjármagna samgöngusáttmálann finnst mér vera skynsamleg ráðstöfun á fé skattgreiðenda,“ segir Ásdís. „Við munum alfarið hafna einhvers konar skattlagningu á höfuðborgarbúa umfram það sem þegar hefur verið gert,“ segir hún.
„Við erum á því að taka þurfi upp samkomulagið og flýta framkvæmdum, en peningar þurfa að vera til og ríkið þarf að koma með þá,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, við Morgunblaðið. Skýr svör þurfi að fást hjá ríkinu varðandi fjármögnun.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗