Er þetta sönnun þess að opin sambönd virka ekki?

Vikan var viðburðarík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.

Marta María hitti Rikka G. og gaf honum jólastyttur 

Það er ekki á hverjum degi sem Jesús, María mey og Jósef fá far í splunkunýjum BMW. Það gerðist þó þegar nýr og glæsilegur BMW iX3 var prófaður. Marta María Winkel tók til í bílskúrnum og fór í Sorpu með jólaskraut sem þjónaði ekki lengur tilgangi og mælti sér mót við útvarpsstjörnuna Rikka G. og færði honum Betlehem-styttur að gjöf en hann hafði lengi dreymt um að eignast slíkt jólaskraut. 

Einu sinni var Jón Atli Jónasson keðjureykjandi með allt á hornum sér en ekki lengur! 

Ágústa Kolbrún Roberts og Dr. Gunni.

Ágústa Kolbrún Roberts og Dr. Gunni. mbl.is/Anton Brink

Opnaði sig um ástina

Ágústa Kolbrún Róberts og Dr. Gunni eru nýtt par! Hún tók sig til og opnaði sig um sambandið og þjóðin stóð á öndinni. 

Sigríður Rakel Ólafsdóttir er hætt hjá Kosmos.

Sigríður Rakel Ólafsdóttir er hætt hjá Kosmos. Ljósmynd/LinkedIn

Hætt í vinnunni! 

Sigríður Rakel Ólafsdóttir er hætt hjá Kosmos! 

Annie Mist Þórisdóttir er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim. mbl.is/Marta María

Hvað gerði Annie Mist fyrir 30 milljónirnar?

Annie Mist Þórisdóttir CrossFit-stjarna vann 30 milljónir á heimsleikunum í Los Angeles 2011 og segir að það hafi verið lífsbreytandi að eignast alla þessa peninga. 

Valgerður Halldórsdóttir fjölskyldufræðingur hefur sett íbúð sína í Hafnarfirði á sölu. Samsett mynd/mbl.is/Kristinn Magnússon

Fóru á trúnó

Hanna Birna Kristjánsdóttir og Sigríður Margrét Oddsdóttir fóru á trúnó. Einhverjar segja að það hafi verið skellur að missa af þessu. 

Atli Steinn Guðmundsson ræddi um opin sambönd í hlaðvarpinu, Marta María býður heim. mbl.is/Óttar Geirsson

Valgerður flytur! 

Valgerður Halldórsdóttir fjölskyldufræðingur hefur sett íbúðina sína í Hafnarfirði á sölu en ný ævintýri eru handan við hornið hjá henni. 

Virka opin sambönd?

Atli Steinn Guðmundsson er hættur að vera í opnu sambandi og sagði frá því að hann hefði verið í níu slíkum. Er það ekki sönnun þess að opin sambönd virka ekki, eða hvað? 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅