Arnar tjáði sig um stjóraskipti United
Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara líst vel á að fá Argentínumanninn Mauricio Pochettino til að stýra enska knattspyrnufélaginu Manchester United en viðurkennir jafnframt að hann muni sakna Michaels Carrick.
Carrick var látinn taka pokann sinn í dag og stefnir allt í að Pochettino, sem er núverandi þjálfari bandaríska landsliðsins, taki við stjórnartaumunum.
Arnar er mikill stuðningsmaður Manchester United en hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær fyrir leik Íslands gegn Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
„Ég finn fyrir blendnum tilfinningum,“ sagði Arnar.
Hann hélt áfram:
„Sorglegt að missa goðsögn úr grúbbunni en ég er mjög hrifinn af þessari ráðningu. Ef við fáum þann Pochettino sem var hjá Tottenham þá erum við í toppmálum. Þannig að ég er gríðarlega ánægður með þessa ráðningu.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗