Íbúð með gullfallegum stiga seld á 170 milljónir
Einstök hæð við Hofsvallagötu vakti athygli þegar hún var auglýst til sölu. Íbúðin er 240 fm að stærð og er í húsi sem reist var 1956. Það sem vakti sérstaka athygli var stiginn á milli hæða sem er fallega hannaður, mikið djásn.
Nú hefur íbúðin verið seld. Seljendur eru Elísabet Eggertsdóttir og Benedikt Blöndal Ásgeirsson. Kaupendur eru Laura Marie Engelhoff og Hugh O'Bryan Engelhoff. Þau greiddu 170.000.000 kr. fyrir íbúðina.
Í íbúðinni hafði eldhúsið verið endurnýjað og stór eyja aðskildi eldhús og stofu. Samliggjandi stofur setja svip sinn á íbúðina ásamt loftlistum og gólflistum. Auk þess prýða fallegir gluggar íbúðina.
Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi, þar af tvö sérlega rúmgóð. Hjónaherbergið er með útgengi á svalir til suðurs. Lítið þvottahús er jafnframt á hæðinni.
Í kjallaranum er þriggja herbergja íbúð með sérinngangi sem er skráð undir sama fastanúmeri og aðaleignin. Þar er eldhús opið inn í stofu, rúmgott hjónaherbergi, barnaherbergi og lítið þvottahús. Möguleiki er á að opna á milli kjallarans og efri hluta eignarinnar og sameina þannig rýmin, sem gæti hentað stórri fjölskyldu vel.
Smartland óskar Engelhoff-hjónunum til hamingju með íbúðina!
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
