Arnar tjáði sig um stjóraskipti United

Arnar Gunnlaugsson, Michael Carrick og Mauricio Pochettino.

Arnar Gunnlaugsson, Michael Carrick og Mauricio Pochettino. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/AFP

Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara líst vel á að fá Argentínumanninn Mauricio Pochettino til að stýra enska knattspyrnufélaginu Manchester United en viðurkennir jafnframt að hann muni sakna Michaels Carrick.

Carrick var látinn taka pokann sinn í dag og stefnir allt í að Pochettino, sem er núverandi þjálfari bandaríska landsliðsins, taki við stjórnartaumunum.

Arnar er mikill stuðningsmaður Manchester United en hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær fyrir leik Íslands gegn Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.

„Ég finn fyrir blendnum tilfinningum,“ sagði Arnar.

Hann hélt áfram:

„Sorglegt að missa goðsögn úr grúbbunni en ég er mjög hrifinn af þessari ráðningu. Ef við fáum þann Pochettino sem var hjá Tottenham þá erum við í toppmálum. Þannig að ég er gríðarlega ánægður með þessa ráðningu.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅