Runólfi hugnast ekki stefna ráðherra

Runólfur Pálsson segir að við þurfum, sem þjóð, að fara að huga að því hvernig við ætlum að manna heilbrigðisþjónustuna í framtíðinni. Það verði ekki gert með milljóna skólagjöldum á hóp sem heilbrigðiskerfið bindur miklar vonir við. Mbl.is/Arnþór Birkisson

„Þessi áform um að leggja skólagjöld á nemendur sem koma frá löndum utan EES-svæðisins ásamt auknum kröfum um framfærslugetu leggjast illa í mig,“ segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans í samtali við mbl.is um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um framangreint.

Til upprifjunar ræddi mbl.is við Loga Má Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, í september í fyrra sem þá boðaði frumvarp um að íslenskum háskólum yrði heimilað að krefja nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins um full skólagjöld. Enn fremur boðaði ráðherra ákvæði í frumvarpinu sem undanskilja myndi ákveðnar námsleiðir og nemendur innan þeirra þyrftu þá aðeins að reiða fram skrásetningargjald.

Runólfur óttast að frumvarpið, verði það að lögum, muni koma hart niður á heilbrigðiskerfinu sem glímir við manneklu og þá ekki síst á Landspítalanum.

„Í dag eru tólf prósent af starfsfólki okkar með erlent ríkisfang og ef ég man rétt um þrettán prósent hjúkrunarfræðinga. Svo eru einhverjir sem hafa öðlast íslenskt ríkisfang og þar með hækkar hlutfall erlends starfsfólks lítillega,“ segir forstjórinn.

Málið einfalt ... en þó ekki

Telur Runólfur það segja sig sjálft að Landspítali sé í brýnni þörf fyrir erlent vinnuafl. „Hér ríkir mannekla. Við erum með 2.000 hjúkrunarfræðinga á Landspítala og vantar tæplega hundrað stöðugildi og svo er mikil þörf fyrir þetta fólk annars staðar í heilbrigðisþjónustunni líka. Nýliðun hér hefur engan veginn haldið í við þörf. Samfélagið hefur verið að stækka og öldruðum að fjölga,“ segir Runólfur og bætir því við að eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu hér á landi sé mikil og áríðandi.

Málið er einfalt að hans sögn – eða staðreyndirnar eru alltént einfaldar, málið sjálft er það hreint ekki í þessu tilfelli.

„Staðan núna er þannig að við náum ekki að manna þetta með þeim fjölda íslenskra starfskrafta sem við búum yfir og við þurfum mjög á erlendu starfsfólki að halda. Ef við horfum til komandi ára þá vitum við að verkefni munu aukast stöðugt vegna lýðfræðilegra breytinga og að starfsfólki mun ekki fjölga í takt. Reyndar var tekin ákvörðun um að fjölga nemendum í læknisfræði fyrir fáeinum árum, en teljandi fjölgun hefur ekki orðið í öðrum greinum síðustu ár,“ segir Runólfur ómyrkur í máli.

Helsta leiðin fyrir fólk frá löndum utan EES hafi verið að koma inn á námsmannadvalarleyfi og hefja nám í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands.

„Sem dæmi má nefna stóran hóp hjúkrunarfræðinga frá Filippseyjum sem hefur yfirleitt farið þessa leið. Eitt er að læra tungumálið og aðlagast hérna, það er auðveldara að nálgast starfsleyfi þegar þú ert kominn hingað, en svo getur líka verið fyrirstaða í heimalandinu, munur á því hvort þú ferð til annars lands sem námsmaður eða starfskraftur. Ýmsar ástæður eru fyrir þessu, en þetta hefur virkað mjög vel,“ heldur Runólfur áfram.

Málþing í HÍ á morgun

Hann segir meginatriðið í þeirri umræðu, er að þessu tiltekna máli snýr, að brýnna sé fyrir yfirvöld að leita leiða til að laða hingað erlent vinnuafl á sviði heilbrigðisvísindagreina en að takmarka þær leiðir sem fyrir standi opnar.

Hér er þess enn ógetið að Runólfur verður einn þeirra sem taka til máls á málþingi Háskóla Íslands í fyrramálið, föstudagsmorgun, „Skiptir íslenska máli? – Málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli“, en þing þetta verður haldið í fyrirlestrasal Eddu klukkan 10.00 til 11.15.

Forstjórinn vekur sérstaka athygli á mikilvægi málsins, „alla vega í tilviki þessara heilbrigðisstarfsmanna, að þeim sé veitt undanþága. Hin leiðin er að finna eitthvert annað úrræði fyrir fólk frá löndum utan EES sem auðveldar þeim að koma hingað og öðlast starfsleyfi og svo framvegis. Einhvern veginn þarf að styðja við þetta fólk vegna þess að það virðist eiga erfitt uppdráttar með að nálgast þetta frá sínu heimalandi,“ segir hann.

Hin hliðin á peningnum sé tungumálið.

„Starfið snýst um samskipti, þetta hefur með öryggi sjúklinga að gera og því höfum við á Landspítala sett okkur tungumálastefnu og rekum íslenskuskóla sem sniðinn er að fólki í fullu starfi sem hefur ekki tök á að stunda háskólanám með vinnu,“ segir Runólfur.

Íslenskustefnu Landspítalans segir hann gilda til ársins 2030, hún sé hugsuð til að stuðla að aukinni þekkingu á íslensku tungumáli og notkun íslenskunnar.

Finnst ekki örla á umræðu

Runólfur kemur að þungamiðjunni. „Við þurfum, sem þjóð, að fara að huga að því hvernig við ætlum að manna heilbrigðisþjónustuna í framtíðinni. Mér finnst ekki örla mikið á umræðu um það. Við á Landspítala, og á öðrum stofnunum vænti ég, erum með allar klær úti til að reyna að fá hingað erlent fólk,“ segir hann.

Þar standi hnífurinn hins vegar í kúnni, Landspítali og aðrar stofnanir geti ekki gengið of hart fram á þessum vettvangi.

„Það er yfirlýst stefna Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að efnameiri þjóðir séu ekki að draga til sín starfsfólk frá fátækum löndum og skapa skort þar. Það sem við reynum hins vegar að gera er að tryggja greiðar leiðir fyrir þá sem hafa áhuga á að koma hingað og laða fólk til starfa með þeim hætti,“ heldur Runólfur áfram og telur að finna þurfi betri leiðir til þess.

„Þetta hefur verið ákveðin kjörleið fyrir fólk frá löndum utan EES, en þarna er verið að girða fyrir hana og það er ég ósáttur við,“ segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans að lokum um frumvarp ráðherra háskólamála sem í fljótu bragði virðist draga mjög úr möguleikum íslensks heilbrigðiskerfis og fleiri aðila vinnumarkaðarins til að laða til sín starfsfólk þegar skórinn kreppir í framboðinu hér á landi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅