Þrautaganga að bóka tíma: „Allir benda hver á annan“

„Maður þarf einhvern veginn að berjast fyrir því að fá heilsugæslutíma,“ segir Vigdís. Samsett mynd/Seltjarnarnesbær/Aðsend

Vigdís Ingibjörg Pálsdóttir, sem alltaf er kölluð Vinga, ætlaði að panta tíma fyrir sjö ára son sinn hjá heilsugæslulækni í vikunni en það reyndist þrautin þyngri.

Eftir hálftíma bið í netspjalli, árangurslausa leit í tímabókun Heilsuveru og símtal við heilsugæsluna var hún komin aftur á byrjunarreit án þess að vera með bókaðan tíma.

„Það er árið 2026, með öllum þessum tækniframförum, og einhvern veginn hefur okkur tekist að gera þetta eins ónotendavænt og erfitt og mögulegt er,“ segir Vinga í samtali við mbl.is. Hún lýsti raunum sínum í færslu á Facebook í morgun sem hefur vakið mikil viðbrögð.

Beið í 30 mínútur eftir örstuttu svari

Hún tekur fram að erindið hafi ekki verið brátt heldur þurfti sonurinn einfaldlega tíma hjá lækni. Hún hóf leitina í netspjalli Heilsuveru, sem hún hafði áður nýtt sér með góðum árangri, til dæmis til að spyrja um verkjalyf eða annað slíkt.

Hún útskýrði hvað málið varðaði í smáatriðum í netspjallinu og beið að því loknu í 30 mínútur eftir svari. Að endingu fékk hún svo það svar að hún þyrfti að bóka tíma í gegnum Mitt svæði í Heilsuveru.

Undir flipanum Tímabókun á svæði sonarins í Heilsuveru blöstu hins vegar við leghálsskimanir, brjóstaskimun og nöfn fólks sem hún kannaðist ekki við.

„Það stóð ekkert hvort þetta væru hjúkrunarfræðingar eða læknar,“ segir hún. Heilsugæslulæknir fjölskyldunnar var hvergi sjáanlegur á listanum og engir tímar lausir hjá þeim sem þar voru.

Ekki hægt að bóka í gegnum síma

Þá tók hún til þess ráðs að hringja í heilsugæsluna á Seltjarnarnesi. Hún hafði áður reynt að mæta á staðinn og biðja um tíma en verið vísað á að hafa samband í síma 1700.

Starfsmaðurinn í símanum sagði henni að fara á Heilsuveru. Þegar Vinga útskýrði að hún hefði þegar reynt það var henni bent á að senda fyrirspurn undir Skilaboð í Heilsuveru og bíða svars, sem samkvæmt Heilsuveru berst „oftast innan við þrjá daga“.

„Það var ekki fræðilegur möguleiki að bóka tíma í gegnum símann,“ segir Vinga sem furðaði sig á því að til þess að bóka tíma á heilsugæslu ætti ekki að fara í gegnum Tímabókanir í Heilsuveru.

Komin aftur á byrjunarreit

Þegar hún opnaði skilaboðaflipann blasti við að tímabókanir færu ekki fram í gegnum skilaboð og að öll ráðgjöf vegna veikinda færi fram í gegnum 1700, netspjallið og heilsuvera.is.

„Þannig að þarna var ég komin aftur á byrjunarreit og ég veit ekkert hvernig ég á að bóka tíma hjá heilsugæslulækni fyrir barnið mitt,“ segir hún.

Í athugasemdum við færsluna hafa sumir bent á að velja megi flipann Eftirfylgni meðferðar til að koma skilaboðum áleiðis.

„En þetta er ekki eftirfylgni meðferðar. Mig vantar bara tíma,“ segir Vinga.

Benda allir hver á annan

Eftir ábendingar í athugasemdum fór Vinga á vef Domus barnalækna og bókaði þar tíma hjá barnalækni. Það tók hana fimm mínútur.

Hún þarf því frekar að aka frá Seltjarnarnesi upp í Kópavog til sérfræðilæknis en að fá tíma hjá heilsugæslulækni fjölskyldunnar, sem hún segir þó frábæran.

„Það er ekkert í þessu ferli sem meikar sens. Leiðbeiningarnar stangast á og allir benda hver á annan. Heilsugæslan er ein af grunnstoðum samfélagsins. Maður ætti ekki að þurfa að leita krókaleiða í athugasemdakerfi Facebook til að bóka einn læknistíma fyrir barnið sitt,“ segir Vinga að lokum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅