Stórkostlegt gáleysi ósannað í hlaupahjólaslysi
Við hraðaprófanir lögreglu komst hjólið í 47,2 kílómetra hraða á klukkustund í þriðja gír á svonefndri turbo-stillingu. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur hefur staðfest að maður sem varð fyrir bifreið á rafhlaupahjóli í Reykjavík eigi óskertan bótarétt úr ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar hjá VÍS.
Þótt hraðatakmörkun hlaupahjólsins hefði verið aftengd þótti ekki sannað að maðurinn hefði ekið hraðar en aðstæður leyfðu eða sýnt af sér stórkostlegt gáleysi.
Rétturinn staðfesti þannig dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 23. október í fyrra. Dómstigin komust að sömu niðurstöðu um bótaskyldu félagsins og höfnuðu bæði kröfum þess um að bótaréttur mannsins yrði felldur niður eða skertur.
Málið snerist um viðurkenningu á bótaskyldu en ekki fjárhæð bóta.
Missti meðvitund við áreksturinn
Slysið varð að morgni 9. júní 2022 þegar maðurinn var á leið til vinnu. Hann ók rafhlaupahjóli austur eftir stíg meðfram Hringbraut og yfir gönguþverun á frárein að Nauthólsvegi, sem nú heitir Hlíðarfótur.
Bifreið sem hafði verið ekið af Hringbraut inn á fráreinina lenti á manninum. Hann kastaðist í götuna, missti meðvitund og hlaut nokkra áverka.
VÍS hafnaði bótaskyldu og byggði meðal annars á því að breytingar á hlaupahjólinu hefðu gert það skráningar- og tryggingarskylt. Því bæri að beita reglum um sakarskiptingu við árekstur ökutækja. Félagið taldi manninn eiga alla sök á árekstrinum.
Jafnframt byggði félagið á því að maðurinn hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með því að aka á miklum hraða, fyrirvaralaust í veg fyrir bifreiðina og án þess að gæta að umferð.
Hjólið komst í rúmlega 47 kílómetra hraða
Hlaupahjólið var af gerðinni Apollo Ghost og hafði verið auglýst með 25 kílómetra hámarkshraða á klukkustund. Óumdeilt var að gerðar hefðu verið breytingar sem gerðu kleift að aka því hraðar.
Við hraðaprófanir lögreglu komst hjólið í 47,2 kílómetra hraða á klukkustund í þriðja gír á svonefndri turbo-stillingu. Í fyrsta gír á sömu stillingu var hámarkshraðinn 26,6 kílómetrar á klukkustund. Þessar mælingar sýndu hvað hjólið komst hratt en ekki hraða mannsins þegar slysið varð.
Maðurinn kvaðst hafa verið vanur að aka í fyrsta gír á turbo-stillingu. Hann mundi ekki nákvæmlega eftir hraða sínum í aðdraganda slyssins en taldi, miðað við aðstæður, að hann hefði verið á um tíu til fimmtán kílómetra hraða á klukkustund.
Landsréttur taldi ekki liggja fyrir með vissu í hverju breytingarnar á hjólinu hefðu nákvæmlega falist. Miðað við gögn málsins yrði þó lagt til grundvallar að hjólið hefði komið frá framleiðanda með 25 kílómetra hámarkshraða og verið hannað til aksturs á hraða upp að því marki.
Rétturinn staðfesti því niðurstöðu héraðsdóms um að hjólið hefði fallið undir þágildandi skilgreiningu umferðarlaga á reiðhjóli. Þrátt fyrir breytingarnar hefði það hvorki verið skráningar- né tryggingarskylt.
Ekki sannað að hann hefði ekið of hratt
Héraðsdómur taldi ósannað að maðurinn hefði ekið hraðar en aðstæður leyfðu. Dómurinn benti meðal annars á að hann hefði þurft að taka krappar beygjur við gönguþverunina og ætla mætti að erfitt hefði verið að halda jafnvægi og ná þeim á mikilli ferð.
Þá taldi dómurinn framburð vitna ekki sanna að maðurinn hefði sýnt svo verulegan skort á aðgæslu að um stórkostlegt gáleysi væri að ræða.
Landsréttur vísaði til þessara forsendna og staðfesti að VÍS hefði ekki tekist að sanna að maðurinn hefði fyrirgert bótarétti sínum, að öllu leyti eða hluta.
Áður hafði úrskurðarnefnd í vátryggingamálum talið manninn eiga bótarétt en skerða bæri hann um helming vegna stórkostlegs gáleysis. Hvorugt dómstigið féllst á þá skerðingu.
VÍS greiði milljón í málskostnað
Landsréttur staðfesti einnig ákvæði héraðsdóms um að málskostnaður milli aðila félli niður og gjafsóknarkostnaður mannsins greiddist úr ríkissjóði.
VÍS var hins vegar gert að greiða eina milljón króna í málskostnað fyrir Landsrétti, sem rennur í ríkissjóð. Gjafsóknarkostnaður mannsins fyrir Landsrétti greiðist úr ríkissjóði, þar á meðal milljón króna málflutningsþóknun lögmanns hans.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗