Á að vera hápunktur Íslandsferðarinnar

Hörður Bender, Mr. Iceland, vill að heimsókn á Úlfsstaði í Landeyjum verði hápunktur Íslandsferðar gestanna. Til þess þurfi persónulega þjónustu og litla hópa. Þótt hann hyggist bæta við gistiaðstöðu ætlar hann ekki að fjölga gestum í hestaferðunum sjálfum.
Þetta kemur fram í samtali hans við Óskar Bergsson í Dagmálum. Hörður segir vandasamt að auka umsvifin án þess að missa það sem geri upplifunina sérstaka: athyglina og tímann sem hver gestur fær.

Hver gestur er einstakur

Hörður líkir markmiðinu við þær stundir á ferðalögum þegar fólk kynnist heimamönnum, fær heimboð eða lendir á góðu spjalli. Slíkar stundir standi oft upp úr ferðinni.
„Og það er það sem við erum að reyna að skapa hjá okkur, er bara að skapa besta mómentið í þinni ferð til Íslands.“
Þessa upplifun sé erfitt að fjöldaframleiða.
„Það er bara einn kúnni í einu. Það er bara svoleiðis sko.“

Áhersla á gæði frekar en magn

Hörður telur sömu hugsun eiga erindi við íslenska ferðaþjónustu almennt. Spurningin snúist um hvaða gesti landið vilji fá. Hátt verðlag hafi þegar áhrif á samsetningu ferðamannahópsins, sérstaklega yfir háannatímann.
Hann telur uppbyggingu baðlóna, gististaða og annarrar aðstöðu sýna áherslu á gesti sem séu tilbúnir að greiða fyrir gæði. Þar liggi framtíð Íslands sem ferðamannalands, þótt hópferðir verði áfram hluti greinarinnar.
Hörður er jafnframt fylgjandi því að ferðamenn taki þátt í að fjármagna náttúruperlur landsins og segist ekki andvígur náttúrupassa.
Meginatriðið sé að byggja upp góða þjónustu og upplifun fyrir þá sem vilji koma hingað og hafi efni á því.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅