Átta látnir eftir hrun byggingar
Átta manns létu lífið þegar íbúðarhús hrundi í Brooklyn í New York-borg á miðvikudag, að því er yfirvöld í borginni greindu frá í dag. Tvö börn eru meðal þeirra látnu.
Húsið, sem var á þremur hæðum, hrundi nærri gatnamótum Bedford Avenue og Flatbush Avenue í Flatbush-hverfinu. Það féll ofan í byggingargryfju á aðliggjandi lóð, þar sem gröftur stóð yfir.
Orsökin óljós
„Þetta hefur verið skelfilegur morgunn og kvöld fyrir borgina okkar,“ sagði Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, sem tilkynnti nýjustu tölu látinna og sagði að á annan tug til viðbótar hefðu slasast.
Orsök hrunsins eru sögð óljós að svo stöddu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗