„Ég ætla ekki að láta neyða mig að kaupa ónýtt hús“
Dagmar Valsdóttir óttast að fjölskyldan þurfi að yfirgefa Grindavík á ný þrátt fyrir að vilja taka þátt í endurreisn bæjarins. Ljósmynd/Aðsend
Dagmar Valsdóttir óttast að þurfa að flytja með fjölskyldu sína aftur úr Grindavík, jafnvel fyrir jól. Hún sneri aftur í bæinn ásamt eiginmanni sínum og fjórum sonum, en gistiheimild fjölskyldunnar samkvæmt hollvinasamningi við Fasteignafélagið Þórkötlu rennur út í janúarlok.
Húsið sem fjölskyldan dvelur í er að hennar sögn illa farið og hún vill ekki kaupa það á þeim kjörum sem Þórkatla hefur kynnt.
„Ég ætla ekki að láta neyða mig að kaupa ónýtt hús,“ segir Dagmar í samtali við mbl.is.
„Ekki einn sem sat“
Dagmar var meðal þeirra sem gagnrýndu endurkaupaáætlunina á fjölmennum íbúafundi í Grindavík á miðvikudag. Þar bað hún þá sem treystu ekki Þórkötlu að standa upp.
„Fólkið stóð upp og það var ekki einn sem sat,“ segir hún.
Þórkatla hefur síðan ákveðið að fresta tveimur kynningarfundum sem halda átti 17. og 19. nóvember. Í svari við fyrirspurn mbl.is segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri félagsins, að farið verði yfir athugasemdir Grindvíkinga áður en fleiri fundir verða haldnir.
Ekki kemur fram í svarinu hvort áætluninni verði breytt eða gistiheimildir framlengdar.
Dagmar situr í stjórn Járngerðar, hagsmunasamtaka Grindvíkinga, en tekur fram að í þessu viðtali tali hún fyrir eigin hönd en ekki samtakanna.
Vatn drýpur úr eldhúsljósinu
Fjölskyldan dvelur í húsi sem hún keypti skömmu áður en Grindavík var rýmd. Það er nú í eigu Þórkötlu, en fjölskyldan hefur afnot af því samkvæmt hollvinasamningi með gistiviðauka.
Dagmar segir ástand hússins slæmt. Þegar mikið rigni leki inn í eldhúsið og vatn drjúpi úr ljósabúnaði í loftinu. Rafmagn hafi farið af í hluta hússins og einnig hafi komið upp vandamál með hitann á ofnunum.
Starfsmenn Þórkötlu hafi komið að viðgerðum og tekist að laga sumt, en enn leki inn í húsið. Hún hrósar sérstaklega starfsmanni sem hafi reynt að koma hitakerfinu í lag, þótt ekki hafi tekist að ráða bót á öllum vandanum.
Vegna ástands hússins segist Dagmar hafa haft samband við Örn og spurt hvort hægt væri að færa hollvinasamning fjölskyldunnar yfir í annað hús, beint á móti gistihúsi sem hún rekur í bænum.
Að sögn Dagmar hafnaði Örn beiðninni og sagði henni að hún gæti skilað lyklunum ef hún vildi ekki dvelja áfram í húsinu.
Fjölskyldan vilji hins vegar vera í Grindavík. Dagmar segir ekki koma til greina að kaupa núverandi hús á uppsettu verði til þess eins að eiga hugsanlega möguleika á að flytja síðar í aðra eign.
Samkvæmt endurkaupaáætlun Þórkötlu verður þeim sem kaupa fyrri eign sína árið 2027 heimilt að skila henni og kaupa aðra eign af félaginu, með yfirfærslu áunninna réttinda. Dagmar segir þó óvíst hvort hún fengi það hús sem hún hefur áhuga á, enda yrði dregið um eignina ef fleiri sæktust eftir henni.
Dagmar er jafnframt harðorð um samskipti Þórkötlu við Grindvíkinga og líkir þeim við gaslýsingu.
Hún segir íbúana lengi hafa búið við óvissu og síendurtekna fresti. Sjálf hafi hún á tímabili farið að efast um hvort þau væru að fara fram á of mikið, eftir að hafa ítrekað reynt að fá breytingar á fyrirkomulaginu.
„Þórkatla hefur hagað sér eins og versti gaslýsandi sem til er,“ segir Dagmar.
Allt að hálf milljón á mánuði
Dagmar hefur einnig miklar efasemdir um greiðslukjör endurkaupaáætlunarinnar og telur að heildarkostnaðurinn geti orðið mörgum fjölskyldum þungur í skauti.
Sem dæmi má taka hús sem kostar 80 milljónir króna. Samkvæmt áætluninni er kaupsamningsgreiðslan að lágmarki 5% kaupverðs, eða fjórar milljónir króna. Þeir sem gera samning árið 2027 geta þó greitt 2%, eða 1,6 milljónir króna, við undirritun og hin 3%, eða 2,4 milljónir króna, eigi síðar en 3. janúar 2028.
Mánaðarleg kaupleiga miðast við eftirstöðvar kaupverðs og nemur 4% á ári árið 2027. Í þessu dæmi eru það rúmlega 260 þúsund krónur á mánuði, miðað við að 2% kaupverðs hafi verið greidd. Árið 2028 hækkar hlutfallið í 5% á ári.
Kaupendur fá jafnframt allt að fjóra mánuði án kaupleigugreiðslna, að því gefnu að tímabilið falli innan ársins 2027. Dagmar segist ánægð með þann frest, en bendir á að kaupleigan sé aðeins hluti útgjaldanna.
Við hana bætast hiti, rafmagn, fasteignagjöld, tryggingar og viðhald. Þá geti þurft að ráðast í kostnaðarsamar viðgerðir.
Að mati Dagmar getur heildarkostnaðurinn þannig numið 400 til 500 þúsund krónum á mánuði, eftir stærð og ástandi eignanna.
Endurkaupaáætlunin gerir þó ráð fyrir að kaupendur geti skilað eigninni á gildistíma samningsins, til 31. janúar 2030, og fengið upphaflegu kaupsamningsgreiðsluna endurgreidda. Skilyrði er að eignin sé í sambærilegu ástandi og við afhendingu, en annars getur viðgerðarkostnaður verið dreginn frá endurgreiðslunni.
Hluti mánaðarlegra greiðslna kemur til lækkunar kaupverðs ef kaupin ganga eftir, en greiðslurnar teljast leiga ef eigninni er skilað.
Dagmar telur skilaréttinn ekki breyta því að fjölskyldur þurfi að taka mikla fjárhagslega áhættu. Hún efast jafnframt um að kaupverðið, sem miðast við það sem Þórkatla greiddi fyrir eignirnar, endurspegli markaðsvirði þeirra í dag.
Körfuboltinn skipar stóran sess í lífi sona Dagmar, sem segir þá hafa notið þess að alast upp í Grindavík. Hér fagna Grindvíkingar Íslandsmeistaratitli karlaliðsins fyrr á árinu. mbl.is/Anton Brink
Hrósar kennurum í erfiðum aðstæðum
Dagmar og eiginmaður hennar eiga fjóra syni, tíu, fjórtán, sextán og átján ára. Tveir þeirra ganga í grunnskóla í Grindavík og segir hún strákana hafa þurft að ganga í gegnum mikið undanfarin ár.
Hún hrósar kennurunum í bænum sérstaklega og segir þá hafa staðið sig stórkostlega við erfiðar aðstæður. Börnin hafi fengið góð tækifæri eftir heimkomuna, meðal annars í körfuboltanum, og strákunum líði vel í Grindavík.
Dagmar hefur jafnframt áhyggjur af áhrifunum á skólastarfið ef fleiri fjölskyldur lenda í sömu stöðu og þurfa að flytja aftur úr bænum.
„Hvað eiga kennararnir að gera?“ spyr hún.
Óvissan sé ekki síður erfið fyrir syni hennar, sem spyrji hvað taki við.
„Hvað eigum við að gera? Hvernig verður þetta, mamma?“
Dagmar segist ekki hafa nein svör handa þeim.
Ef gistiheimild fjölskyldunnar verður ekki framlengd og hún getur ekki keypt annað húsnæði í Grindavík gæti hún þurft að flytja aftur í íbúð sem hún á í Kópavogi.
Verði það niðurstaðan vill Dagmar frekar flytja þegar jólafrí skólanna hefst en að bíða fram í febrúar og raska skólagöngu barnanna á miðri önn. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um flutninga.
Fyrst reksturinn, nú heimilið
Flutningar myndu ekki aðeins hafa áhrif á fjölskyldulífið. Dagmar rekur gistihús í Grindavík og hefur unnið að frekari uppbyggingu, meðal annars með fyrirhuguðu kaffihúsi og hjólaleigu.
Ef fjölskyldan þarf að flytja aftur til Kópavogs segir hún að þau áform verði að líkindum að bíða. Þá þyrftu þau hjónin að keyra á milli bæjanna til að sinna rekstrinum.
Hún hefur velt fyrir sér ýmsum leiðum til að geta verið áfram í Grindavík, jafnvel að útbúa tímabundna svefnaðstöðu fyrir fjölskylduna í gistihúsinu.
Áhyggjurnar af rekstrinum eru ekki nýjar. Í mars 2025 ræddi Dagmar við mbl.is um erfiða stöðu fyrirtækisins og gagnrýndi þá aðstoð sem stjórnvöld höfðu boðið litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Grindavík.
„Við þurfum bara að loka,“ sagði hún þá.
Dagmar hefur síðan haldið gistihúsinu gangandi, en óttast nú að húsnæðismálin setji frekari uppbyggingu í uppnám.
Vonast til að áætlunin verði endurmetin
Dagmar vonast til að Þórkatla endurmeti áætlunina og gefi Grindvíkingum lengri tíma til að ákveða framtíð sína. Hún vill meðal annars að gistiheimildir samkvæmt hollvinasamningum verði framlengdar svo fjölskyldur þurfi ekki að raska skólagöngu barna sinna.
Þá telur hún að skoða ætti hvort hægt sé að lengja kaupleigusamningana úr þremur árum í fimm, breyta fyrirkomulagi upphafsgreiðslnanna og kanna betur raunverulegt markaðsvirði húsanna.
Dagmar tekur fram að Grindvíkingar hafi fengið greitt fyrir fasteignir sínar og gerir ekki lítið úr þeirri aðstoð sem þeir hafa fengið. Hún segist jafnframt gera sér grein fyrir því að margir eigi erfitt um þessar mundir og að þolinmæði almennings gagnvart frekari kröfum Grindvíkinga sé takmörkuð.
„Það eru allir í vondum málum,“ segir hún og nefnir meðal annars erfiða stöðu ferðaþjónustunnar.
„En það þarf samt að gera þetta vel,“ segir Dagmar og bendir á að fleiri byggðarlög geti orðið fyrir náttúruhamförum í framtíðinni.
Hún leggur áherslu á að hún vilji ekki fá neitt gefins, heldur lengri tíma og raunhæfan möguleika á að kaupa sér heimili í Grindavík.
„Við erum ekkert að biðja um mikið, við erum bara að biðja um lengri frest,“ segir Dagmar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/55/56/1555643.jpg)

