Sakar forráðamenn United um viðbjóðslega framkomu

Michael Carrick var rekinn fyrr í dag.

Michael Carrick var rekinn fyrr í dag. AFP/Piero Cruciatti

Gary Neville, sparkspekingur Sky Sports og fyrrverandi fyrirliði Manchester United, segir framkomu félagsins við Michael Carrick hafa verið „viðbjóðslega“ eftir að Carrick var látinn taka pokann sinn sem knattspyrnustjóri liðsins.

Allt bendir til þess að Mauricio Pochettino taki við United af Carrick en Neville er afar ósáttur við hvernig staðið var að málum.

Neville gagnrýnir sérstaklega forráðamenn félagsins fyrir að vera í Mónakó á sama tíma og Carrick stýrði æfingum liðsins í Manchester. Á sama tíma hafi forráðamenn United unnið að því að fá Pochettino til félagsins með því að ræða við bandaríska knattspyrnusambandið.

„Þetta er einfaldlega viðbjóðslegt,“ sagði Neville og bætti við að framkoman endurspeglaði afar slaka forystu innan félagsins.

Verður að ná stjórn á leikmannakaupum

Hann telur Carrick hafa átt skilið meiri virðingu frá félaginu, enda hafi hann þjónað því af mikilli prýði bæði sem leikmaður og þjálfari.

Carrick tók við liðinu í janúar eftir brotthvarf Rúbens Amorim og vann 12 af 17 leikjum sínum áður en hann fékk tveggja ára samning eftir að hafa tryggt United sæti í Meistaradeild Evrópu. Þrír sigrar í síðustu 15 leikjum tímabilsins reyndust honum hins vegar að falli.

Neville varaði jafnframt Pochettino við því að vandamál United væru mun umfangsmeiri en svo að hægt væri að leysa þau með því einu að skipta um knattspyrnustjóra.

„Hann verður að ná stjórn á leikmannakaupum félagsins og krefjast þess að umtalsvert fjármagn verði sett í liðið,“ sagði Neville.

Gary Neville starfar í dag sem sparkspekingur hjá Sky Sports.

Gary Neville starfar í dag sem sparkspekingur hjá Sky Sports. AFP

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅