Fyrirliðinn hafnar United
Fyrirliðinn Bruno Fernandes hefur hafnað öðru tilboði enska knattspyrnufélagsins Manchester United um nýjan samning.
The Athletic greinir frá því að Fernandes hafi hafnað fyrra tilboði félagsins í sumar og nú einnig því nýjasta.
Portúgalinn er 32 ára gamall og rennur núverandi samningur hans við United út næsta sumar. Hann má því hefja viðræður við önnur félög í janúar.
Fernandes hefur verið besti leikmaður United frá því hann gekk í raðir félagsins í byrjun árs 2020. Hann átti frábært tímabil á síðustu leiktíð og sló þá stoðsendingamet ensku úrvalsdeildarinnar með því að leggja upp 21 mark. Auk þess skoraði hann níu mörk.
Fernandes hefur skorað sex mörk og lagt upp þrjú í 14 leikjum á yfirstandandi tímabili. United situr hins vegar í 18. sæti deildarinnar með átta stig eftir tíu umferðir.
Michael Carrick var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra félagsins í dag og stefnir allt í að Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino taki við liðinu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗