Orri stórgóður í stórsigri
Landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson átti stórleik í stórsigri Portúgalsmeistara Sporting á Marítimo, 41:27, í portúgölsku deildinni í handbolta á Madeira í kvöld.
Orri skoraði tíu mörk og var markahæsti maður leiksins.
Sporting er í toppsæti deildarinnar með 31 stig, stigi á undan Porto, sem á þó leik til góða.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗