Burnham mun berjast fyrir samningi við ESB

Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. AFP

Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands segir að það muni ráðast á lokasprettinum hvort samningur náist um nýtt upphaf í samskiptum við Evrópusambandið (ESB) fyrir leiðtogafund í næstu viku. 

„Ég mun berjast á næstu dögum til að tryggja að við komum þessum samningum í höfn,“ sagði Burnham eftir að hafa sótt fjölmennan fund evrópskra leiðtoga í Dyflinni á Írlandi.

Hann hefur rofið bannhelgi í heldur sundrandi umræðu meðal Breta um sambandið. Hefur hann gerst svo skeleggur að nefna þann möguleika að Bretland gæti einn daginn sótt um aðild að sambandinu að nýju.

Fyrsta prófraun Burnhams

Leiðtogafundur Burnhans með æðstu embættismönnum ESB, Ursulu von der Leyen og Antonio Costa, í Brussel 20. nóvember er talinn fyrsta prófraunin á loforð hans um að tryggja betri tengsl við sambandið.

Meira en áratugur er síðan Bretar kusu í þjóðaratkvæðagreiðslu að ganga úr sambandinu. Kannanir sýna reglulega að flestir Bretar sjá eftir úrsögninni úr ESB.

Eru Burnham og fulltrúar ESB sagðir stefna að þremur samningum: samningi sem dregur úr skriffinnsku við útflutning matvæla, samningi sem tengir saman viðskiptakerfi beggja með losunarheimildir og samningi um svokallaða ungmennaáætlun.

Burnham er sagður binda vonir við að samningarnir hleypi lífi í efnahag Bretlands og styðji við markmið hans um að lækka framfærslukostnað.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅