Tapsár faðir lét gremju sína bitna á mótherjum sonar síns – Skeit á ganginn í skólanum

Kristinn H. Guðnason

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 22:30

Nemendur Grosse Point South menntaskólans fögnuðu sigri í amerískum ruðningi en fengu óskemmtilega sendingu frá tapsárum föður.

Faðir drengs í Michigan er sakaður um að hafa látið gremju sína bitna á mótherjum sonar síns eftir slæmt tap í amerískum ruðningi. Eins og sést á öryggismyndavélum kúkaði hann á ganginn í skóla mótherjanna.

Breska blaðið Metro greinir frá þessu.

Lögreglan í Detroit í Michigan hefur til rannsóknar undarlegt mál sem átti sér stað í menntaskólanum Grosse Pointe South High School á föstudag. Það er að faðir drengs í öðrum skóla, Bedford High School, mætti í skólann og kúkaði á ganginn. Atvikið náðist á öryggismyndavélar. Eftir á hljóp hann í burtu.

Faðirinn sagði lögreglunni í yfirheyrslu að hann hefði orðið veikur og þurft skyndilega að létta á sér. En eins og sést í öryggismyndavélakerfinu gekk hann fram hjá nokkrum klósettum áður en hann lét gossa. Virtist eins og hann væri að gera þetta viljandi.

Atvikið hefur verið sett í samhengi við nýlegan leik í amerískum ruðningi á milli skólanna tveggja, en sonur mannsins beið þar afhroð með liði sínu. Endaði viðureignin með 42 stigum gegn 0.

Vita ekki hver ákæran verður

„Þessu höfum við aldrei kynnst áður,“ sagði Anto Trupiano, varðstjóri hjá lögreglunni en var ekki viss hvað maðurinn yrði ákærður fyrir. „Við munum fara fram á ákæru á hendur honum. Líklegast verður um að ræða mál sem fellur undir óspektir eða raski á allsherjarreglu, en það á eftir að koma í ljós,“ sagði hann.

Carl Shultz, skólastjóri Bedford menntaskólans, var miður sín vegna málsins. Þetta myndi ekki líðast.

„Hjá Bedford skólanum gerum við miklar kröfur til nemenda okkar, starfsfólks og samfélagsins varðandi öryggi, virðingu og íþróttamannslega framkomu, bæði innan vallar og utan,“ sagði hann.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅