Truflun á kerfi Microsoft Outlook
Umfangsmikil truflun hafði áhrif á tölvupóstsþjónustu Microsoft Outlook fyrr í kvöld og áttu tugir þúsunda notenda í erfiðleikum með að komast í tölvupóstinn sinn.
Microsoft sagði í fyrstu að tilkynningar um truflanir væru að berast frá Norður- og Suður-Ameríku.
Síðar kom í ljós að vandinn hafði áhrif á tengingu við Microsoft 365-þjónustuna hjá notendum alls staðar í heiminum.
130.000 tilkynningar bárust
Samkvæmt vefsíðunni Downdetector, sem fylgist með truflunum, tilkynntu nærri 130.000 notendur um vandamál með Outlook skömmu eftir klukkan 18 í kvöld að íslenskum tíma.
Tilkynningum um truflanir hefur síðan fækkað og um klukkan 20 sögðust um 60.000 notendur eiga í vandræðum með Outlook.
„Við leitum af krafti allra leiða til að draga úr áhrifunum,“ skrifaði fyrirtækið í færslu á X.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗