Elti konu með ber kynfæri
Brotin voru framin í júlí og desember 2023 og í tveimur tilvikum í júlí 2024. Þau beindust gegn konum sem voru einar á gangi. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur hefur þyngt dóm yfir manni fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum og dæmt hann í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt manninn í átta mánaða fangelsi og skilorðsbundið refsinguna að öllu leyti.
Landsréttur staðfesti sakfellingu mannsins fyrir þrjú brot gegn blygðunarsemi og eina kynferðislega áreitni. Vegna alvarleika brotanna taldi rétturinn ekki rétt að fresta fullnustu refsingarinnar að öllu leyti. Þrír mánuðir hennar eru því óskilorðsbundnir.
Þá hækkaði Landsréttur miskabætur til hvers brotaþola um 200 þúsund krónur. Samanlagðar bætur hækkuðu þannig úr 2,1 milljón króna í 2,9 milljónir, auk vaxta.
Sýndi klám og beraði kynfæri sín
Brotin voru framin í júlí og desember 2023 og í tveimur tilvikum í júlí 2024. Þau beindust gegn konum sem voru einar á gangi.
Í fyrsta tilvikinu stöðvaði maðurinn bifreið sína við hlið konu og fékk hana til að koma að bílnum. Þegar hún kom að glugganum sýndi hann henni klámmyndband í síma sínum.
Í öðru tilviki fékk hann konu til að nálgast bifreiðina, sýndi henni kynferðislegt myndskeið, fróaði sér og bað hana um að hjálpa sér. Konan tilkynnti atvikið þegar í stað til lögreglu og gaf upp skráningarnúmer bifreiðarinnar. Maðurinn var handtekinn um tuttugu mínútum síðar.
Í þriðja tilvikinu fékk hann konu til að koma að bifreið sinni, beraði kynfæri sín og fróaði sér þar til hún hljóp á brott.
Fjórða brotið átti sér stað um nótt. Maðurinn ók við hlið konu, kallaði til hennar og fór síðan út úr bifreiðinni með kynfæri sín sýnileg. Hann elti hana bæði á bifreiðinni og fótgangandi þrátt fyrir að hún bæði hann ítrekað um að láta sig í friði. Konan hljóp undan honum og lýsti síðar miklum ótta vegna atviksins.
Gagnrýndi rannsókn og sönnunarmat
Maðurinn neitaði sök og krafðist sýknu fyrir Landsrétti. Ákæruvaldið krafðist hins vegar þyngri refsingar.
Maðurinn byggði meðal annars á því að hætta hefði verið á að upplýsingar um einstök brot hefðu haft áhrif á frásagnir brotaþola í öðrum ákæruliðum. Hann taldi héraðsdóm ekki hafa gætt nægilega að þeirri hættu.
Þá gagnrýndi hann að brotaþolar hefðu að hluta borið kennsl á hann með aðstoð samfélagsmiðla og að lögregla hefði ekki látið fara fram formlega sakbendingu. Jafnframt lægi ekki fyrir fullnægjandi tæknirannsókn á síma hans sem staðfesti að þar hefði verið klámefni.
Landsréttur taldi skýrt af héraðsdóminum að sjálfstætt mat hefði verið lagt á hvern ákærulið.
Héraðsdómur hafði metið framburð brotaþolanna stöðugan og trúverðugan. Frásagnir þeirra fengju jafnframt stoð í öðrum gögnum og vitnisburði, meðal annars myndefni, upplýsingum úr eftirlitskerfi lögreglu og framburði fólks sem varð vart við uppnám þeirra eftir brotin.
Gerði athugasemd við hluta forsendnanna
Landsréttur tók þó ekki undir allar forsendur héraðsdóms.
Í umfjöllun héraðsdóms um tvo ákæruliði hafði meðal annars verið vísað til þess að maðurinn hefði ekki getað skýrt framburð brotaþola eða hvers vegna hann væri borinn röngum sökum. Landsréttur taldi þá umfjöllun ekki geta haft þýðingu fyrir úrlausn málsins.
Með þeirri athugasemd, en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms, staðfesti Landsréttur sakfellinguna og niðurstöðu um hvaða refsiákvæði brotin vörðuðu.
Alvarleiki brotanna kallaði á óskilorðsbundna refsingu
Við ákvörðun refsingar hafði héraðsdómur meðal annars litið til þess að brotin hefðu verið gróf og beinst gegn ungum konum sem voru einar á ferð. Maðurinn hefði sýnt einbeittan ásetning og mikið skeytingarleysi gagnvart vilja þeirra. Brotin hefðu öll valdið brotaþolum vanlíðan.
Héraðsdómur taldi þó rétt að skilorðsbinda refsinguna að fullu með hliðsjón af hreinum sakaferli mannsins og dómaframkvæmd.
Landsréttur vísaði til sömu sjónarmiða um ákvörðun refsingar en taldi níu mánaða fangelsi hæfilegt. Með hliðsjón af sakaferli mannsins var fullnustu sex mánaða frestað skilorðsbundið í tvö ár. Alvarleiki brotanna stæði hins vegar í vegi fyrir því að refsingin yrði öll skilorðsbundin.
Miskabætur til brotaþolanna nema eftir hækkun Landsréttar 500 þúsund, 600 þúsund og 800 þúsund krónum og einni milljón króna.
Manninum var jafnframt gert að greiða um 2,4 milljónir króna í áfrýjunarkostnað. Landsréttur staðfesti ákvæði héraðsdóms um sakarkostnað en tók fram að útlagður kostnaður vegna túlkunarþjónustu félli ekki undir greiðsluskyldu mannsins.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗