Elsti Booker-verðlaunahafinn til þessa
Breski rithöfundurinn M. John Harrison hlýtur Booker-verðlaunin 2026 fyrir dystópísku satíruna The End of Everything. Hann er 81 árs og er þar með elsti rithöfundurinn sem hefur hlotið verðlaunin. Þau eru veitt verkum sem skrifuð eru á ensku og koma út í Bretlandi eða Írlandi. Harrison hlýtur 50 þúsund pund eða rúmar átta milljónir íslenskra króna í verðlaunafé.
Verðlaunabókin fjallar um mann sem dregur fram lífið með því að leita að verðmætum í fjörunni í Kent á Englandi. Sagan gerist í nálægri framtíð en samfélagið hefur lent í hremmingum sem virðast hafa breytt öllu. Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að bókin fjalli ekki aðeins um allt, heldur um núið. „Leiftrandi og óræð heldur hún lesandanum við yfirborð einhvers afar alvarlegs og djúpstæðs.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗