Atli Steinn starfaði sem strippari á háskólaárunum

Atli Steinn Guðmundsson.

Atli Steinn Guðmundsson. mbl.is/Óttar Geirsson

Blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson hefur lifað ævintýralegu lífi. Sumarið 1999 hélt hann ásamt vini sínum til Austurríkis þar sem þeir réðu sig til starfa á nektardansstað. Atli Steinn rifjaði upp þetta óvenjulega tímabil í hlaðvarpinu Marta María býður heim.

Á þessum tíma hafði hann starfað sem dyravörður á skemmtistöðum í Reykjavík og tekið þátt í kvennakvöldum þar sem hann steig á svið. Hann og vinur hans ákváðu síðan að ganga skrefinu lengra og sækja um starf á nektardansstað í Vínarborg.

„Við ákváðum að taka aðeins lengra og sóttum um starf á strippstað í Vín í Austurríki,“ sagði Atli Steinn.

Óttuðust að hafa tekið ranga ákvörðun

Þeir héldu utan 27. maí 1999 og var tekið á móti þeim á flugvellinum. Þegar þeir áttuðu sig á umfangi starfseminnar fóru að renna á þá tvær grímur.

Atli Steinn rifjaði upp að hann hefði velt því fyrir sér hvort hann hefði átt að halda áfram í fyrra starfi sínu hjá Securitas í stað þess að leggja í þetta ævintýri.

En sumarið reyndist eftirminnilegt.

Þeir dvöldu í sjö vikur í Vínarborg áður en þeir héldu til München og þaðan til Hamborgar, þar sem þeir komu meðal annars fram á skemmtistað fyrir samkynhneigða karlmenn.

Missti tólf kíló

Starfið var þó enginn dans á rósum. Atli Steinn lýsti löngum vinnudögum og mikilli áfengisdrykkju sem fylgdi starfinu.

Þegar hann sneri aftur til Íslands í ágúst hafði hann misst tólf kíló.

Þrátt fyrir álagið segist hann ekki sjá eftir reynslunni. Honum þótti sérstaklega áhugavert að kynnast fólki úr ólíkum áttum og fá innsýn í líf þeirra sem störfuðu í nektardansi.

„Þetta var mjög skemmtilegur tími, sumarið '99, alveg dásamlegur,“ sagði Atli Steinn.

Hann viðurkenndi þó að það hefði reynst erfitt að setjast aftur á skólabekk í Háskóla Íslands eftir þetta viðburðaríka sumar.

Hægt er að hlusta á þáttinn á helstu streymisveitum og á hlaðvarpsvef mbl.is. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅