Harry Kane hetjan í sögufræga leiknum sínum
England hafði betur gegn Króatíu, 2:1, í riðli þrjú í A-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta á Wembley-leikvanginum í Lundúnum í kvöld.
Englendingar eru í öðru sæti riðilsins með tólf stig, þremur stigum á eftir heimsmeisturum Spánar, en Króatar eru í þriðja sæti með þrjú. Tékkar eru síðan neðstir með ekkert.
Morgan Rogers kom Englandi yfir á 24. mínútu en Petar Sucic jafnaði metin fyrir Króatíu á 59. mínútu, 1:1.
Harry Kane, sem varð leikjahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins í kvöld, skoraði síðan sigurmarkið úr vítaspyrnu á 64. mínútu.
England mætir Spáni ytra í lokaumferðinni en Króatía fær Tékkland í heimsókn.
Álex Baena og Marc Pubill skoruðu þá mörk Spánverja í 2:0-útisigri á Tékkum í Prag.
Ásamt því fékk Ladislav Krejcí fyrirliði Tékklands rautt spjald á 69. mínútu.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗