Frábær sigur Ítala á Frökkum
Ítalía vann frábæran sigur á Frakklandi, 3:1, í fyrsta riðli í A-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í Mílanóborg í kvöld.
Ítalir komust með sigrinum í toppsæti riðilsins með tíu stig, jafnmörg og Frakkland í öðru. Belgía er síðan í þriðja sæti með níu stig og Tyrkland neðst með ekkert.
Ítalir heimsækja Belga í lokaumferðinni en Frakkar fá Tyrki í heimsókn.
Michael Olise kom Frökkum yfir á tíundu mínútu leiksins en Francesco Pio Esposito jafnaði metin fyrir Ítali á 26. mínútu, 1:1.
Davide Frattesi kom Ítalíu yfir á 63. mínútu og Esposito innsiglaði sigur ítalska landsliðsins með marki úr vítaspyrnu á 75. mínútu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗