Mættu ástfangin á rauða dregilinn eftir tíu ára aðskilnað
Ariana Grande og kærasti hennar Ricky Alvarez á frumsýningu Focker-in-Law í gær. Þau eru saman á ný eftir tíu ára aðskilnað. AFP/Charly Triballeau
Söngkonan og leikkonan Ariana Grande og dansarinn Ricky Alvarez mættu saman á frumsýningu kvikmyndarinnar Focker-in-Law í New York í gær.
Þetta var í fyrsta sinn sem þau komu fram sem par á rauðum dregli, en þau tóku nýverið saman aftur eftir tíu ára aðskilnað.
Grande, sem er 33 ára, og Alvarez, 35 ára, létu vel hvort að öðru þar sem þau stilltu sér upp fyrir ljósmyndara. Hún klæddist hvítum og ljósgráum röndóttum kjól með blómaskreytingum en hann var í svörtum jakka, hvítri skyrtu og gallabuxum.
Orðrómur um að þau væru aftur farin að stinga saman nefjum kviknaði í júní þegar sást til þeirra snæða hádegisverð saman í Austin í Texas.
Í ágúst birti Grande síðan myndir af þeim saman á Instagram sem þóttu renna stoðum undir orðróminn.
Breytti texta um fyrrverandi kærasta
Grande virtist einnig vísa til endurfundanna á tónleikum í september þegar hún breytti texta lagsins thank u, next. Í upprunalega textanum syngur hún um að hafa samið lög um Ricky sem hún hlusti nú á og hlæi að. Að þessu sinni söng hún þess í stað að hún vonaðist til að hann yrði hennar síðasti kærasti.
Síðan hefur söngkonan birt fleiri myndir af þeim saman á samfélagsmiðlum. Alvarez hefur einnig komið fram í myndskeiði fyrir snyrtivörumerki hennar, R.E.M. Beauty, þar sem hann reyndi að giska á hvaða vörur Grande væri með á vörunum eftir að hafa kysst hana.
Þau kynntust þegar Alvarez starfaði sem dansari á tónleikaferðalagi Grande. Þau byrjuðu saman vorið 2015 en slitu sambandi sínu í júlí árið eftir.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
